Aulahrollur

Þarna sitja þeir og ræða fyrirvara á óformlegum vinnufundi.

Stjórnmálamenn henda fram óræðum hugtökum sem þeir skilgreina nánast aldrei og ég er farin að stórefast um að þeir skilji sjálfir.

Hugtök eins og endurreisn efnahagslífsins. Ríkisstjórnin situr við fótskör landshöfðingjans Rozwadowski og hlýðir á kenningar hans. Kyngir hugtökunum án þess að leita frekari skýringa.

Þetta er hættulegt fólk sem vegna vangetu og hagsmunapots mun leiða samfélagið á vonarvöl ef ekki verður gripið inn í þetta ferli.

Hvað er að gerast í samfélaginu akkúrat í dag?

Tugir þúsunda ganga atvinnulausir

Skjaldborgin hefur gufað upp

Taka á lán sem má ekki nota og allir vita að má ekki nota. Til hvers?

Svavar Gestsson skrifaði undir samning sem afsalaði Íslendinga réttindum án þess að nokkuð kæmi í staðinn.

Skilanefndirnar leika sér að almannafé

Spilltir embættis menn sitja við kjötkatlanna

Ekkert hefur verið gert til þess að umbreyta morknu stjórnafari

Bönkunum er stjórnað af útrásarvíkingum

Útrásarvíkingar eru að hirða verðmæti almennings í skjóli vinstri stjórnar (Hitaveita Suðurnesja)

Einkavæðing í fullu blússi, almenningur byggir upp verðmæti sem síðan eru færð í hendur fárra

Fjórflokkurinn ver spillinguna sem aldrei fyrr.

Útsendarar fjórflokksins (t.d. Þráinn) gera nú allt til þess að splundra Borgarahreyfingunni rétt eins og þeir réðust inn í frjálslynda flokkinn á sínum tíma til þess að verja kvótakerfið.

Hvað segir fjórflokkurinn: skítt með almenning, skýtt með lýðræðið.


mbl.is Ræða breytingar á Icesave í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Maínó er með svipaðan lista hér.

Hvað meinarðu þegar þú segir að  "Bönkunum er stjórnað af útrásarvíkingum" ? Hvað er Jón Ásgeir Jóhannesson Baugs-maður að "vinna" fyrir skila-nefnd Landsbankans  ?   Er hann ráðgjafi þeirra ?  Eru menn ekki með fullu viti , spyr ég.

Eru bankarnir ekki í eigu og umsjón ríkisins ? Þeir eru á ábyrgð almennings allavega.

Er bönkunum ennþá stýrt af óreiðumönnunum bak við tjöldin ?

Mín sýn er allavega sú að gömlu eigendurnir / kúlu-lána-þegarnir  séu enn með spottana, sbr. ofsafengin viðbrögði við lekanum ú KÞ.

Hákon Jóhannesson (IP-tala skráð) 9.8.2009 kl. 14:54

2 Smámynd: Andri Geir Arinbjarnarson

Jakobína,

Góð samantekt, við eru nú að uppskera eins og við prófkjörssáðum. 

Andri Geir Arinbjarnarson, 9.8.2009 kl. 16:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband