Hvenær gerði al-Qaeda síðast árás

Hryðjuverkaógnin hefur verið að umsnúa veröldinni fyrir almenning sem einu sinni gat talist frjáls. Sífellt er hert eftirlit og dregið úr persónuvernd.

Valdhafarnir beina hryðjuverkalögunum gegn okkur hryðjuverkamönnum (sem hafa til þess unnið með því að þjóðin hefur alið af sér nokkra vitleysinga).

Yfirvöld í Bandaríkjunum ala á fordómum almennings og reyna að viðhalda hryðjuverkahræðslunni sem nú er farið að yfirfæra á vestræna menningu sem hefur gerst brotleg að því marki að feta í fótspor Bandaríkjamanna í ný-frjálshyggjubrjálæðinu.


mbl.is Bandaríkin óttast nýjar hryðjuverkaárásir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Al-Qaeda gerði seinast árás á Bandaríkin 11. september, 2001 þegar þeir flugu flugvélum inn í World Trade Center í New York borg.

Að öðru leyti, tveir þumlar upp.

Helgi Hrafn Gunnarsson (IP-tala skráð) 23.8.2009 kl. 18:57

2 identicon

ER það Helgi Hrafn? Þú ert jafn viss um það og að Osama hafi staðið fyrir þessu?

Samt var Osama aldrei kærður formlega fyrir árásirnar, og hann er ekki eftirlýstur heldur vegna þeirra, og það er vegna þess samkvæmt FBI að engar sannanir eru fyrir hendi.

Athugaðu bara topp 10 most wanted listann hjá FBI, og athugaðu sjálfur.

Þetta er ekki alveg svona einfalt mál!

magus (IP-tala skráð) 23.8.2009 kl. 20:38

3 identicon

Ég er ansi viss, jamm. Ástæðan er sú að ég hef skoðað málstað Al-Qaeda sem varð ekki til 11. september. Liðið sem er kalla Al-Qaeda (með Osama sem forsprakka) sprengdi upp tvö sendiráð í Afríku, og var Osama á Top 10 listanum löngu fyrir 11. september, reyndar. Hljóðupptökur úr flugvélunum, flugritar og hundruðir milljóna sjónarvotta benda til þess að þeim hafi verið rænt af arabískri grúppu sem flaug þeim vísvitandi inn í World Trade Center. Það eru staðreyndir ef ég skil rétt.

Það er mjöööög mikið af vangaveltum og spurningum á internetinu um atburðina, en eins og þú segir, það er ekki svo einfalt mál, en enn sem komið er hef ég ekki séð nein sönnunargögn yfirhöfuð fyrir því að einhver önnur grúppa en Al-Qaeda hafi staðið á bakvið þetta. Hvort Osama sjálfur hafi undirbúið árásirnar eða ekki veit ég ekki og er satt best að segja fjandans sama um, þar sem hann er óumdeildur höfuðpaur Al-Qaeda.

Auðvitað liggur best við að saka ríkisstjórnina um það, það er voðalega vinsælt af augljósum ástæðum, nánar til tekið geðsýki, valdasýki, yfirgangi, hroka og heimsku ríkisstjórnarinnar.

Nú er ég alveg sammála þér hvað varðar lögregluvæðingu Bandaríkjanna í kjölfarið, en það er ríkisstjórnin að misnota atburðinn, sem er ekki það sama og að valda honum.

Allavega, ég veit ekki betur en að Al-Qaeda hafi valdið þessu. Ég hef séð allar samsæriskenningamyndirnar og sumar velta upp góðum spurningum, en ég hef líka séð mótrökin og enn hef ég ekki séð kenningu sem stingur upp á öðrum en Al-Qaeda sem heldur neinum velli. Ef þú ert í skapi til þess máttu gjarnan stinga upp á einhverju.

Helgi Hrafn Gunnarsson (IP-tala skráð) 23.8.2009 kl. 21:09

4 Smámynd: Karl

Helgi, hefur þú séð þessa? Ef ekki, verði þér að góðu. :)

9/11 Blueprint for Truth presented by Architect Richard Gage, AIA
 

Karl, 23.8.2009 kl. 22:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband