Nóbelsverðlaunahafi í Silfrinu

Nobelsverðlaunahafinn Joseph Stiglitz verður gestur Egils Helgasonar á sunnudag.

Stiglitz hefur gagnrýnt AGS og fjármálakerfið og varað við þeirri atburðarrás sem nú er í gangi á Íslandi.

Ég hef lent í því að stjórnmálamenn hafa kvæst á mig þegar ég bendi á að það er veruleiki að baki þeirri tölfræði sem þeir kynna. Hundrað og fimmtíu milljarða niðurskurður á eftir að kosta íslensk mannslíf. Hjá því verður ekki komist. Ráðherrar hafa sagt "við getum borgað Icesave" en þeir forðast að ræða hverju þeir eru tilbúnir til að fórna til þess. Það er þægilegra að hugsa bara um tölurnar.

Mæli með Stiglitz á sunnudag.

Myndbandið sýnir Stiglitz í viðtali.

Joseph Stiglitz bauð ríkisstjórninni aðstoð sína

eftir bankahrunið en ríkisstjórnin þáði ekki boðið.

Það er skýrt dæmi um kæruleysi

sjálfstæðisflokks og samfylkingar gagnvart þjóðini.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Ráðlagði hann ekki íslendingum að hefja samstarf við AGS.  Minnir það.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 30.8.2009 kl. 22:39

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Ráðlagði að taka ekki lán ef ég man rétt.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 30.8.2009 kl. 22:51

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Former chief economist of the World Bank and Nobel Prize winner Joseph
Stiglitz warns that IMF's lending policy ultimately undermines the
loan's recipient nations
and that the loans' interest rates are too
high.

He furthermore adds that the monetary policies imposed on
crisis-ravaged countries are "contractionary in contrast to the
expansionary economic policies adopted in Britain or France," referring
to recent IMF "emergency" loans to Pakistan, Ukraine and Iceland. 
Af Reykjavík Grapevine.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 30.8.2009 kl. 23:01

4 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Jú, hann hefur verið gagnrýninn á AGS.  Hann var náttúrulega að vinna hjá Alþjóðabankanum á tímabili.

En var ekki sagt að Sólrún hefði ráðfært sig við Stiglitz varðandi AGS.  Þetta var þó prívatsamtal auðvtað en samt var haft eftir honum að ísland skyldi hefja samstarf en vera á varðbergi o.s.frv.

Það er ekki eftirsóknarvert að hafa AGS yfir sér en spurningn samt hvort Ísland hafi ekki verið nauðbeygt til þess. 

Ómar Bjarki Kristjánsson, 30.8.2009 kl. 23:10

5 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Og já - verður fróðlegt að sjá og heyra hvað hann hefur að segja í Silfrinu.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 30.8.2009 kl. 23:11

6 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já það kemur í ljós.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 30.8.2009 kl. 23:56

7 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Af pressan.is 22. júní:

Ingibjörg, sem þá var utanríkisráðherra, segist hafa sett sig í samband við Stiglitz þann 29. október í fyrra. Það hafi hún gert þar sem Stiglitz hefur verið gagnrýninn á störf Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS). Hann hafi engu að síður tjáð henni að það væri vert fyrir Ísland að láta reyna á samstarf við sjóðinn, en jafnframt vakta það vel. Ef íslensk stjórnvöld teldu hins vegar að samstarfið væri ekki að virka, ættu þau að slíta samkomulaginu og fara eigin leiðir. Aðspurð segir Ingibjörg samtalið ekki hafa breytt afstöðu sinni til samkomulagsins við AGS.

Magnús Helgi Björgvinsson, 31.8.2009 kl. 01:00

8 Smámynd: Júlíus Björnsson

Það er skýrt dæmi um kæruleysi

sjálfstæðisflokks og samfylkingar gagnvart þjóðinni.


???

Ásetningur sumra fyrir fólkið er ekki eins lítilsvirðandi. Sumir trúa því að það sé löglegt í EU að dæla auðmagni yfir í Meðlima-Ríkið á kostnað hinna sem eru í samkeppni við að halda varanlegu jafnvægi í reikningsjöfnuði í þjóðarríkisheildartekjum til langs tíma. Sumir telja líka hlutdeildarkostnað í 400 löggjafarnefndum hvers vöxtur stöðvast ekki fyrr en en hæfur meirihluti hefur náð sínu fram, borgi sig fyrir lítil meðalgreind ríki sem ekki geta smíðað sín lög sjálf. Talar hver fyrir sig. 

Sumir halda að auðmagn sé ósýnilegt og skilja ekki að ódýr lán kallast fórnarlán eða fjárfestingarkostnaður sem borgar sig þegar skuldunauturinn getur ekki keypt sig úr skuldum.

Eftir höfðinu dans limirnir í Samfo og fjárlæsið er í samræmi.  

Íslendingar er svo almennilegir : eða barnalegir? á mælikvarða EU?

Júlíus Björnsson, 31.8.2009 kl. 03:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband