STIGLITZ í spor EVU JOLY

Nóbelsverðlaunahafinn og hagfræðingurinn Joseph Stiglitz þekkir vel til innviða Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans. Hann hefur bent á að þessir aðilar festi þjóðir í fátækragildru.

Nóbelsverðlaunahafinn þekkir einnig vel til Íslands því hann varaði íslensk stjórnvöld við bankahruninu árið 2001.

Skýrslunni sem Stiglits ritaði fyrir seðlabankann árið 2001 var stungið var ofan í skúffu. Lesa má um þetta á Icenews og á heimasíðu seðlabankans. Aðvaranir Stiglitz hafa ekki verið mikið í umræðunni en Ingibjörg Sólrún afþakkaði aðstoð hans í kjölfar bankahrunsins. Sennilega má skýra margt í ástandi íslensks efnahagslífs með hroka misvitra stjórnmálamanna sem hunsa ráð sérfræðinga sem eru alvöru sérfræðingar.  Stiglitz ráðlagði yfirvöldum eindregið, árið 2001, að innleiða skatta og setja reglur til þess að draga úr hættunni sem fylgir smæð efnahagskerfis ef það er óvarið. Stieglitz7H

Viðbrögð Guðbjarts Hannessonar við ráðgjöf Buchheit (hann er einn fremsti lagasérfræðingur á sviði þjóðarskulda) sem ráðlagði fjárlaganefnd að hafna Icesave er skýrt dæmi um hroka og dómgreindarleysi misvitra stjórnmálamanna en Guðbjartur taldi sig vita betur en einn færasti lagasérfræðingur heims á sviðinu.

Stiglitz hefur varað við því að  Alþjóðagjaldeyrissjóðsins steypi efnahagskerfum í glötun með aðkomu sinni og nefnir Ísland sem dæmi.

Myndbandið sýnir viðtal Greg Palast við Stiglitz. Í upphafi ræðir Palast við framkvæmdastjórna Alþjóðabankans en síðan talar hann við Stiglitz. Sýndar eru óeirðir í kjölfar innleiðingu stefnu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í nokkrum löndum.

Stiglitz heldur því fram að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn loki augunum fyrir spillingu í pólitískum tilgangi.

Palats ræðir við hann um fjögurra skrefa prógram sem farið er eftir í löndum þar sem Alþjóðagjaldeyrisstjóðurinn hefur viðkomu:

-Frelsi "hot" fjármagns (fjármagn áhættufjárfesta)

-Frelsi til þess að hækka verðlag

-Viðskiptafrelsi fyrir alla

-Frelsi til þess að einkavæða allt

Stiglitz hefur einnig gagnrýnt harðlega þá hugmyndafræði sem hefur verið ríkjandi á undanförnum árum og ótrúverðugleika Alþjóðagjaldeyrissjóðsins:

Ég hvet alla sem vettlingi geta valdið að kynna sér Stiglitz og kenningar hans.

Það verður spennandi að heyra hvað hann hefur að segja í Silfri Egils á sunnudag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

nú keppast sumir við að banna þetta "vítisengla" en hver er munurinn á þessari pólitík

Stiglitz heldur því fram að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn loki augunum fyrir spillingu í pólitískum tilgangi.

Á að banna pólitiík ?

Jón Snæbjörnsson, 1.9.2009 kl. 15:08

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

nei það á að banna spillingu

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 1.9.2009 kl. 16:11

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Það er tilgangslaust að banna spillingu en það þarf að uppræta hana.

Árni Gunnarsson, 1.9.2009 kl. 17:14

4 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Satt segir þú Árni

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 1.9.2009 kl. 17:23

5 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessuð aftur Jakobína.

Þetta er svo sorglegt hvernig þjóðin hefur veðjað aftur á alla þá sem voru gerendur Hrunsins, annað hvort sem fjárbraskarar eða  kenningasmiðir.

Samt var fullt af úrvals fólki sem vildi koma okkur til aðstoðar.  Ég man til dæmis eftir því að þegar Egill (þökk sé honum og hans lífsmarki) var nýbúinn að fá Hudson í þátt sinn, þá var gagnsókn Kastljóssins fólgin í því að fá Guðmund hagfræðing til að mása og hvása gegn honum, eins og kallinn væri sögupersóna í grísunum þremur.  En þessi sami Guðmundur var nýbúinn, rétt fyrir Hrun, að hæðast þeim sem vöruðu við of miklum skuldum.  Vitnaði þar í þekktan frjálshyggjupostula sem Hrunadansarar voru þá nýbúnir að flytja inn til að róa liðið.

Og hverjir voru í nefndinni sem gáfu Landsbankanum hæstu einkunn fyrir skýrann og greinilegan ársreikning???  Hafði Háskóli Íslands, og þeir Þórólfur og Gylfi ekki eitthvað um það að segja???  Og hverjir voru menn viðskiptalífsins ár eftir ár????  Voru það ekki Hrunadansarar??  Aðaldansararnir eru kannski farnir að sviðinu, en þeir sem áttu ekki til orð af hrifningu yfir stíl þeirra og færni, þeir mæta i fjölmiðla og gera grín að mönnum eins og Stiglitz og Hudson.  

Og fólk trúir þessum vitleysingum ennþá.  Hvað þurfa þeir að koma þjóðinni í djúpan skít áður en við þá verður sagt: "Já, já vinur, þarftu ekki að fara heim til þín og taka til í bílskúrnum".

En það alvarlega við vitleysuna er það eins og þú hefur margoft bent á, að það eru mannslíf í húfi, og sködduð börn og unglingar.  Þess vegna þarf þessari vitleysu að linna.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 1.9.2009 kl. 19:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband