Er verið að þvinga Ísland í eigu "erlendra fjárfesta" fyrir spott prís?

....vegna þess að lánalínur eru lokaðar verða Íslendingar að teysta á erlent áhættufjármagn....

....að virkja ekki hverja sprænu á Íslandi er skortur á framtíðarsýn...

....að selja ekki orkuna á gjafverði til erlendrar stóriðju er skortur á framtíðarsýn....

Þannig hljómar áróðurinn sem borinn er uppi af málaliðum "erlendra fjárfesta"

Bankarnir eru fullir af peningum bæði íslenskum og útlenskum en stefna yfirvalda veldur því að íslenskir aðilar geta ekki fjármagnað atvinnuuppbyggingu.

....orkusala til íslenskra aðila er margfalt dýrari en orka til erlendra aðila.

Er það góð framtíðarsýn að koma allri arðsemi af auðlindunum úr landi í stað þess að nýta þessa arðsemi til þess að styrkja inniviði samfélagsins og auka farsæld Íslendinga. Almennings í landinu.

Ætti ekki að stuðla að því að auðlindirnar séu nýttar á þann veg að það auki farsæld fólksins sem greiðir hér skatta og heldur uppi þeim innviðum sem eru til staðar.

Þessi sníkjudýramenning sem innleidd var undir forystu sjálfstæðisflokksins og heldur áfram á forræði vinstristjórnar er bein atlaga að íslenskri menningu og íslensku samfélagi.

Það hefur aldrei sést nein almennileg úttekt á því hverju stóriðjan skilar í raun til samfélagsins. Hverju er verið að leyna þar.


mbl.is Hefja á sókn í orkumálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ógeðslegt bara.  Og áfram halda glæpirnir og misnotkunin á alþýðu landsins.  Fiskurinn og orkan okkar SKAL fara ódýrt og frítt til útvaldra, helst voldugra sem AGS rukkar fyrir.   Glæpaland.   Glæpaflokkar.  Get ekki orðað það pent. 

ElleE (IP-tala skráð) 10.9.2009 kl. 17:11

2 identicon

Joseph E. Stiglitz:
Mistök að nýta ekki auðlindirnar:

Sagði hann að ef þetta ætti við um Bandarkin myndi hann hiklaust segja að það væri út í hött að ágóðinn renni ekki beint til almennings. Hans skoðun sé því sú að almenningur á Íslandi þurfi að endurheimta ágóðann af náttúruauðlindum landsins:

http://mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2009/09/07/mistok_ad_nyta_ekki_audlindirnar/

ElleE (IP-tala skráð) 10.9.2009 kl. 17:27

3 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Ég vil byltingu takk fyrir. Byltingu hugarfarsins en hvernig getum við komið þessu áleiðis til almennings og hvernig fáum við hann til að hlusta?

kv, ari

Arinbjörn Kúld, 10.9.2009 kl. 23:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband