Er Rajendra K. Pachauri á mála hjá Río Tinto?

Rajendra K. Pachauri hljómar eins og framsóknarmaður og spurning hvort Halldór Ásgrímsson eða Finnur Ingólfsson hafi heimsótt hann.

Auðvitað finnst Pachauri ágætt að skítnum sé bara komið fyrir á þessar eyju í miðju Atlandshafi.

Alþjóðafyrirtækin virðast smeygja hagsmunum sínum inn víða.


mbl.is Dró forsetinn upp glansmynd?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Hvenær "dró" (NB þátíð) forsetinn upp þessa glansmynd. Mér sýnist viðmælandi fréttamannsins vera að skýrskota til ráðstefnu sem byrjar 23 þ.m. sem forsetinn ætlar að sækja og tala á. Viðmælandinn segir að forsetinn verði "að draga fram kost og löst á stefnunni en ekki aðeins draga upp glansmynd." Fyrirsögnin er því afar villandi, ekki satt?

Svanur Gísli Þorkelsson, 22.9.2009 kl. 00:31

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Þessi málflutningur minnir mjög svo á málflutning framsóknar- og sjálfstæðismanna þegar þeir fóru í framkvæmdir sem hafa aukið skuldir Landsvirkjunar úr 25 milljörðum í 515 milljarða...

Kannski hefur Pachauri verið í kaffi hjá útrásarvíkingunum eða Alfreð Þorsteins...

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 22.9.2009 kl. 00:44

3 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

árni bölmóður finsson gerir athugasemdir við málatilbúnað -

Pachauri deildi sem kunnugt er friðarverðlaunum Nóbels með Al Gore fyrir framlag þeirra til loftslagsmála og telur Árni ýmislegt gagnrýnivert hafa komið fram í erindum beggja í Háskóla Íslands.

„Mér fannst þeir ekki sérlega upplýstir um stöðuna hér. Að halda að Ísland sé forysturíki stenst ekki skoðun. Forsetinn [Ólafur Ragnar Grímsson - innsk blm.] verður að draga fram kost og löst á stefnunni en ekki aðeins draga upp glansmynd."

 var einhver að tala um hroka??????  sjálfumgleði og......

Ólafur Ingi Hrólfsson, 22.9.2009 kl. 04:14

4 Smámynd: Benedikt Gunnar Ófeigsson

Þeir sem lesa fréttina sjá að það er verið að vísa í fyrirlestur á Laugardaginn var.

 "Í fyrirlestri sínum í Háskóla Íslands á laugardaginn talaði Pachauri um..."

Ólafur: Árni Finnsson er hvorki hrokafullur né sjálfumglaður í þessum ummælum sínum. "Mér fannst þeir ekki sérlega upplýstir um stöðuna hér" eru eins veik ummæli og hugsast getur um það bull sem kemur út  úr Pachaui og Ólafi. Ísland er eins langt frá því og hugsast getur að vera forysturíki í loftslagsmálum. T.d. erum við á undanþágu frá kyoto, við höfum nóg af orku sem ekki veldur loftmengun, en samt er nánast ekkert af samgöngukerfum okkar rafknúið og við erum ennþá að reyna að fá meiri undanþágur frá losunarheimildum. Íslensk stjórnvöld hafa dregið lappirnar í umræðunni um loftslagsmál til að þjóna álrisanum Alcoa. það hefði verið einfald mál fyrir íslendinga (og reyndar sparað miljarða í gjaldeyri) að minnka losun CO2 á Íslandi margfalt meira en annars staðar með því einu að rafmagnsvæða samgöngur hér að hluta, en stjórnvöld voru of upptekin af því að kyssa Acloa rassa til að slíkar hugmyndir væru framkvæmdar. Þvílík forysta! 

  "að betra sé að knýja álbræðslur hér með endurnýjanlegri orku en með jarðefnaeldsneyti annars staðar"

þessi gamla áróðurs setning er fengin beint að láni úr áróðursstríðinu um Kárahnjúka og byggir ekki að neinu leiti á þekkingu. Líklega á Jakobína kollgátuna.

Miðað við hvað þessi Pachaui lætur út úr sér veit hann greinilega ekkert í sinn haus. Ólafur Ragnar veit hins vegar ýmislegt um loftslags- og orkumál, en hann kýs að segja ekki alla söguna.

Benedikt Gunnar Ófeigsson, 22.9.2009 kl. 10:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband