Erlendir lánadrottnar eru ekki þeir sömu í dag og þeir voru þegar bankarnir fóru í þrot. Skuldabréfin fóru á uppboð og voru keypt af "erlendum" áhættufjárfestum. Mikil leynd er yfir því hverjir eru núverandi lánadrottnar gömlu bankanna. Skuldabréfin í Glitni fóru á 2% af upprunalegu verði.
Nú fagnar Steingrímur J því að "þeim áfanga hafi verið náð" að koma 95% Íslandsbanka í hendurnar á "erlendum" kröfuhöfum. Með manni og mús eða orkuauðlindunum á Suðurnesjum eins og það heitir. En "erlendir" kröfuhafar sem eru áhættufjárfestar sem hafa keypt skuldir Glitnis sem nú er Íslandsbanki, stefna að ábata af sínum fjárfestingum. Þeir eru ekki aðeins að kaupa auðlindirnar heldur eru þeir að kaupa íslenska skuldara. Skuldara sem Steingrímur og Jóhanna lofuðu að slá skjaldborg um.
Merkilegt er að ekki hefur verið sagt neitt um hverjir séu hinir nýju eigendur Íslandsbanka né heldur hafa fjölmiðlar spurt að því. Kemur viðskiptavinum bankans ekkert við hverjir eiga hann? Eru fjölmiðlar fallnir í doða eða taka þeir þátt í leynimakki stjórnvalda?
Ég tek það þó fram að ég veit ekki hversu erlendir áhættufjárfestarnir eru því hverjum sem var var í lófa lagið að bjóða í skuldabréf bankanna. Sjá allan pistilinn hér.
![]() |
Vanskil aukast hratt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 6.4.2010 kl. 16:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2009-09-17
Ríkisskattstjóri í lið með útrásarvíkingum
Upplýsingar úr hlutafélagaskrá.
Er hlutafélagaskrá leyniskrá?
Hvað segir það um íslenskt samfélag?
Banka og kvótaræningjarnir virðast teygja anga sína inn í allar stofnanir samfélagsins
Sýnum Jóni Jósef samstöðu
![]() |
Grunaður um upplýsingastuld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2009-09-17
Ungverjaland komið á brunaútsölu
Erlendir aðilar hafa sópað til sín verðmætum í Ungverjalandi frá því að landið gekk í ESB. Ungverjaland var skuldlaust en er nú veðsett upp í rjáfur. Skuldirnar lama innlent framtaka en Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er einnig að verki í Ungverjalandi.
Klíkan sem er að reyna að komast yfir íslenskar auðlindir er nú einnig að nýta sér bágt ástand í Ungverjalandi.
![]() |
Mannvit í milljarða útrás |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2009-09-17
Hvað er að gerast í Íslandsbanka?
Það runnu á mig tvær grímur þegar fréttir fóru að berast af því að Steingrímur J Sigfússon og Jóhanna Sigurðardóttir stefndu að því að koma Íslandsbanka og Kaupþingi í eigu erlendra kröfuhafa.
Erlendir lánadrottnar eru ekki þeir sömu í dag og þeir voru þegar bankarnir fóru í þrot. Skuldabréfin fóru á uppboð og voru keypt af "erlendum" áhættufjárfestum. Mikil leynd er yfir því hverjir eru núverandi lánadrottnar gömlu bankanna. Skuldabréfin í Glitni fóru á 2% af upprunalegu verði.
Nú fagnar Steingrímur J því að "þeim áfanga hafi verið náð" að koma 95% Íslandsbanka í hendurnar á "erlendum" kröfuhöfum. Með manni og mús eða orkuauðlindunum á Suðurnesjum eins og það heitir. En "erlendir" kröfuhafar sem eru áhættufjárfestar sem hafa keypt skuldir Glitnis sem nú er Íslandsbanki, stefna að ábata af sínum fjárfestingum. Þeir eru ekki aðeins að kaupa auðlindirnar heldur eru þeir að kaupa íslenska skuldara. Skuldara sem Steingrímur og Jóhanna lofuðu að slá skjaldborg um.
Merkilegt er að ekki hefur verið sagt neitt um hverjir séu hinir nýju eigendur Íslandsbanka né heldur hafa fjölmiðlar ekki spurt að því. Kemur viðskiptavinum bankans ekkert við hverjir eiga hann? Eru fjölmiðlar fallnir í doða eða taka þeir þátt í leynimakki stjórnvalda?
Og Steingrímur segir: Menn væru ekki að bjóða upp á þessa leið nema þeir hefðu góða ástæðu til að ætla að kröfuhafarnir gangi að henni. Ég held að hún sé í raun hagstæð fyrir báða aðila.
Nú og svo sagði kona við mig í kvöld að hún hefði lesið á fréttavef að erlendir kröfuhafa hafi farið fram á nauðungarsölu 20.000 heimila. Þegar ég kom heim fann ég ekki fréttina á vefnum en fann þessa færslu í athugasemdakerfi Egils:
Það var það staðfest í morgun úr hring aðstoðarmanns sýslumannsins að þeir eru í áfalli yfir því að erlendir kröfuhafar Íslandsbanka fara fram á nauðungarsölu 20.000 heimila sem eru í neikvæðri fjárhagsstöðu...Ekki veit ég hvað er til í þessu en ekki hljómar það vel.
Sú staðreynd stendur samt eftir að skuldarar Íslandsbanka eru nú komnir upp á náð og miskunn erlendra áhættufjárfesta. Ég tek það þó fram að ég veit ekki hversu erlendir áhættufjárfestarnir eru því hverjum sem var var í lófa lagið að bjóða í skuldabréf bankanna.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 04:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Ef ekki talaðu þá við Steingrím J Sigfússon
og spurðu hann hvað hann er að gera
til að koma í veg fyrir það.
![]() |
Nágrönnum auðmanna líður illa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hópur manna á Íslandi hefur í tvo áratugi stefnt að því að eignast allar auðlindir Íslands. Þeir hafa smeygt sér inn í stjórnmálin, komið sér upp varðhundum í ríkisstofnunum, dómskerfinu og bönkunum.
Það hefur verið unnið markvisst að því að gera hugmyndir sem lúta að mannréttindum ótrúverðugar. Sérhagsmunir einkaframtaksins hafa skilyrðislaust haft forræði. Siðferðisleg sjónarmið, réttlætissjónarmið og mannréttindi varð eitthvað sem konum sem leiddist fengu að takast á við á tyllidögum milli þess sem þær þeyttust á milli frumsýninga og verslunarleiðangra.
Sanngjarnt og réttlátt samfélag virðist vera nánast útópískt í hugum almennings.
Þessir menn koma sér upp svokölluðum sektarhring....við getum kallað það "the triangle of blame."
Þeir skipta á milli sín atburðarrásinni og benda síðan hvor á annann og reyna að rugla almenning í því hver sé sökudólgurinn. Dæmi um svona hring er að finna í HS- orku dæminu.
Einingarnar í þeim hring eru:
Árni Sigfússon (XD i Keflavík) --> Orkuveitan í Reykjavík (XD og XB) --> Ríkisstjórnin vegna Íslandsbanka (XS og Steingrímur)
Þessir aðilar eiga það sameiginlegt að þeir þjóna þeim sem vilja komast yfir auðlindirnar og enginn þeirra hefur áhuga á velferð almennings.
![]() |
Þið settuð Ísland á hausinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2009-09-16
Það var 1879 fyrir 130 árum síðan...
...Eftir 130 ár verður 2139...Þá endurheimta Suðurnesjamenn afnotaréttinn af auðlindunum sem verið er að stela af þeim núna....
Meirihlutinn í borgarstjórn telur að þetta sé ekki afsal á auðlindunum (sbr ef þú afsalar mér afnotaréttinn af húsinu þínu í 130 ár)
Sálfræðingur hefur þetta að segja um siðblindu
They may end up living a "predatory" lifestyle, feeling little or no regret, and having little or no remorse - except when they are caught or about to be locked up. A psychopath is not necessarily a bad person. But they are prone to have problems with society, rules, expectations and relationships.
A psychopath will use people for excitement, entertainment, to build their self-esteem and they invariably value people in terms of their material value (e.g. money, property, comfort, etc..). They can involve and get other people into trouble quickly and they seem to have no regret for their actions.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Hvernig koma þessir aðilar að HS orku-málunum?
Ég bað (frammíkallaði) Óskar Bergsson að afhjúpa leynimakkið en hann sýndi mér ekki þá virðingu að nefna nöfn þeirra manna sem standa á bak við einkavæðingu HS orku.
Menn sem þegar hafa sett þjóðarbúið á hausinn og vinna einbeittir að því að hirða það sem geta úr rústunum.
Hvers vegna hefur Árni Tómasson sem hefur verið í þjónustu útrásarvíkinga fengið að víla og díla með Íslandsbanka....með Geyser Green Energy
AK-72 skrifar góða úttekt á blogginu sínu um flækjurnar sem umlykja þjófnaðinn á auðlindumnum á Suðurnesjum
"Árni Magnússon, fyrrverandi ráðherra og framsóknarmaður, hefur afskipti af framtíð GGE sem starfsmaður Íslandsbanka. Auk þess er Vilhelm Þorsteinsson yfirmaður fyrirtækjasviðs bankans, en hann er sonur Þorsteins Vilhelmssonar, aðaleiganda Atorku, stærsta hluthafa GGE. Hluthafar í VGK-Invest og Atorku hafa því bæði ættar- og flokkstengsl inn í Íslandsbanka."
Ég hvert fólk til þess að lesa þessa úttekt.
Á Hvítbók Á dögunum þóttust kaffihúsagestir á Cafe Mílanó í Faxafeni, taka eftir því þegar Finnur Ingólfsson, auðmaður og bandamaður Ólafs, kom inn um dyrnar. Hann skimaði vel í kringum sig áður en hann settist laumulegur við borð í horninu, þar sem téður Árni Tómasson sat og beið eftir honum.
![]() |
Sala í HS Orku samþykkt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 16.9.2009 kl. 00:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
2009-09-15
Meiri hluti borgarstjórnar sýndi ókurteisi
Meiri hluti borgarstjórnar var ekki hrifin af því að borgarbúar beittu lýðræðisrétti og málfrelsi á pöllum borgarstjórnar.
Borgarar vildu fá svör við spurningum og einnig leiðrétta ýmiskonar misskilning meirihluta borgarstjórnar.
Ég gerði frammíkall en veit ekki hvort það getur talist til dónaskapar eða hvað finnst ykkur:
Þekkir þú Finn Ingólfsson?
![]() |
Heitt og rafmagnað í Ráðhúsinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
2009-09-15
Enda eru þau búin að gera þjóðina að öreigum
Lítum aðeins á afrek stjórnmálamanna:
Fullveldi Íslands --> Afsalað með leynisamningi til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
Mannréttindi --> fótum troðin í íslensku réttarkerfi og af stjórnvöldum
Alþingi --> hefur verið vanhelgað og gert að stimpilstofnun viðskiptaráðs og valdhafa sem ganga erinda kjölfestufjárfesta
Lýðræði --> Þrískipting valds hunsað, stjórnarskráin hunsuð og úrellt í nútíma samfélagi og löggjafarvaldið misnotað í þágu fjárglæframanna
Icesave --> Komandi kynslóð gerð að skuldaþrælum Breta og Hollendinga með einu pennastriki
50 ríkisstofnanir --> til einkavina og í sumum tilfellum með einokunarsamningum við ríkið
Sjávarmiðin --> Gefin fámennum hóp manna sem hefur braskað með þau
Vatnsaflvirkjanir --> Arðinum af þeim afsalað til útlendinga með leynisamningum
Bankarnir --> Gefnir glæpamönnum sem jafnvel borguðu ekki fyrir þá og skiluðu þeim aftur með um 8.000 milljarða skuld
Jarðvarmaauðlindir--> seldar til skúffufélags með kúluláni með veði í sjálfu sér
Jarðvarmaauðlindir --> afhentar erlendum kröfuhöfum í gegn um Íslandsbanka
Nýju bankarnir --> gefnir erlendum kröfuhöfum og íslenskir skuldar settir á náð þeirra
Vatnsréttindi --> seld útlendingum á gjafvirði (Snæfellsnes og Hafnafjörður)
Landsvirkjun --> stórskuldug þrátt fyrir góðan rekstargrundvöll...vegna lélegra samninga við útlendinga
Orkuveita Reykjavíkur --> var stöndugt skuldlaust fyrirtæki þegar Finnur og Alfreð settu puttanna í það en er nú veðsett upp í rjáfur.
Dómstólarnir --> njóta ekki trúverðugleika vegna klíkuráðninga
Ríkisstofnanir --> starfsemin einkennist af vanhæfni vegna klíkuráðninga. Hafa verið gerðar að valdatæki stjórnmálamanna og bregðast hlutverki sínu að standa vörð um velferð almennings
![]() |
Fáir telja forsetann sameiningartákn þjóðarinnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 26.11.2010 kl. 14:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)