2010-02-10
Þetta er engin afsökun Indriði
Merkilegt að nú hafa Vinstri Græn og Samfylking hafið leðjuslag.
Eftirfarandi staðreyndir liggja fyrir um þetta mál:
Sjálfstæðismenn og framsókn og glæpaklíkur á þeirra vegum bera lang mesta ábyrgð á tilurð málsins
Samfylkingin kom málinu í vondan farveg vegna ESB hagsmuna sinna
Vinstri græn brugðust síðan herfilega og þar á meðal Indriði þegar farið var í herferð til þess að koma skuldum glæpaklíku sjálfstæðismanna á herðar almennings
![]() |
Icesave-samningar í raun gerðir í desember 2008 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2010-02-10
Já mjög óvenjulegt
Ég hef verið að hnýta út í misnotkun á hugtakinu femínismi. Femínisminn er tæki til varnar hinum undirokuðu í samfélaginu og með femínismann að vopni má ráðast gegn ríkjandi orðræðu og því sem telst ranglega réttmætt í samtímanum.
Skuldarar eru hinir undirokuðu í samfélaginu í dag hvort sem þeir eru karlar eða konur.
Ég birti þessa grein í smugunni í dag:
Icesave er valdníðsla og valdníðsla er andstæðingur feminismans
Icesave samningurinn er birtingarmynd valdníðslu. Margir hafa tekið að sér að bera þennan kyndil valdníðslunnar. Sjálfstæðismenn og Framsókn tendruðu þennan kyndil þegar þeir komu bönkunum í eigu glæpaklíku. Samfylkingin slóst í hópinn þegar hún tók þátt í gróðahyggjunni og blekkingarleiknum sem hannaður var til þess að hafa fé af almenningi.
Gordon Brown og Hollendingurinn Bos slógust einnig í hópinn með kröftugum hætti eftir bankahrunið. Kyndillinn var síðan afhentur núverandi fjármálaráðherra og vini hans sendiherranum. Í þeirra höndum átti að lögleiða valdníðsluna með ríkisábyrgð sem endanlega hnýtir undirokun við hinn íslenska skattgreiðenda.
Það þykir ekki fínt að gagnrýna Steingrím J fyrir framgöngu hans í Icesave málinu. Fólk sér Steingrím fyrir sér í óhroðanum upp að öxlum sem Sjálfstæðismenn skildu eftir sig og ekki ætla ég að andmæla því að verkefnið væri nokkuð vandasamt ef Steingrímur hefði tekið afstöðu með þjóðinni og gegn valdníðslunni. Hann valdi þó að gera það ekki. Hann tók stöðu með Icesave og því stöðu með valdníðslunni.
Valdhafinn hefur nýtt sér alla þræði valdsins og byggt upp hugmyndakerfi sem ætlað er að sannfæra almenning um að réttmætt sé að gera skuldir glæpaklíkunnar að skuldum skattgreiðenda. Aðgangur valdhafa að fjölmiðlum og fjármagni er ótvíræður og það nýta þeir sér. Til allrar hamingju búa nægilega margir Íslendingar yfir þekkingu til þess að rífa niður þessi hugmyndakerfi jafnóðum og illa gekk því að afvegaleiða þjóðina. Rökþrota vísaði ráðherrann síðan í leyndarmál máli sínu til stuðnings.
Nú á að setjast að samningaborðinu aftur en leyndarmál Steingríms virðist hafa gufað upp. Ýmsir Vinstri grænir tóku stöðu með Steingrími en það jafngildir að taka stöðu með valdníðslunni. Femínisminn er hugmyndafræði sem talar máli hinna undirokuðu hvort sem um er að ræða konur, börn, fatlaða eða samkynhneigða. Femínisminn er gagnrýnin á ríkjandi viðhorf og hvetur til frjálsrar hugsunar. Femínisminn er andstæðingur mismununar og hvers konar misbeitingar valds.
Ég hef kynnt mér nokkuð vel femínisma og það sem kallað er critical theory. Það kom mér því á óvart að horfa upp á vinnubrögð kvenna sem kalla sig femínista í aðdraganda forvals Vinstri grænna um síðustu helgi. Ég ákvað að gefa kost á mér í forvalinu. Hélt satt að segja að menn og konur myndi gleðjast yfir að fá sterka konu í framboðið, þ.e. valkost fyrir þá sem vilja sjá ferska vinda í stjórnmálum auk þess að aðhyllast félagshyggjusjónarmið og jöfnuð.
Það kom mér sérlega á óvart þegar ég frétti af því að yfirlýstir feministar Vinstri grænna gerðu að mér aðför í aðdraganda forvalsins. Létu þau boð út ganga að konan væri klikkuð og annað álíka. Það að vera klikkaður er auðvitað mjög huglægt og hver og einn er getur sennilega talist nokkuð klikkaður út frá einhverjum forsendum. Mér finnst t.d. að sá sem telur sig meðreiðasvein valdníðslunnar og tekur afstöðu með Icesave ekki sérlega klikkaður og tiltölulega sjálfum sér samkvæmur. Ég tel hinsvegar að sá sem kallar sig feminista og tekur afstöðu með Icesave hljóti að vera klikkaður. Nú ekki er laust við að sá sem kallar sig feminista og er með fordóma gagnvart klikkuðum konum sé bara nokkuð klikkaður sjálfur.
Það barst af því frétt í VB að Sóley Tómasdóttir hefði krafist þess að forsetinn segði af sér þegar hann vísaði Icesave til þjóðarinnar. Ekki virðist feministinn hafa verið því hliðhollur að forsetinn skildi hafa tekið stöðu gegn valdníðslunni og hyllt lýðræðið. Eins og komið hefur fram er skilningur minn á feminisma sá að hann taki stöðu með þeim sem eru áhrifaminni í orðræðunni og sé tæki til þess að beita gegn misnotkun valds.
Það er því nokkuð í andstöðu við minn skilning á því hvað feministar Vinstri grænna ættu að vera að gera þegar fréttir berast af því að Silja Bára Ómarsdóttir sem er lektor við Háskóla Íslands hafi staðið í smölun fyrir einn frambjóðandann og sett sig í samband við nemendur sína. Hegðun af þessu tagi er birtingarmynd valdníðslu og ætti ekki að líðast innan Háskóla Íslands. Það er ekki hægt að taka það af lektorum að þeir hafi stjórnmálaskoðanir og að sýn þeirra speglist á einhvern hátt inn í kennslustofur. Við erum hins vegar komin inn á allt annað svið þegar viðkomandi er farinn að beita sér fyrir persónu í forvali fyrir tiltekinn flokk.
Fleiri sögur hafa borist af fólki sem ekki hafa skynjað stöðu sína í aðdraganda forvalsins og misnotað vald sitt á ýmsan hátt.
Stjórnsýslan í Reykjavík ber á ýmsan hátt menjar úrelts fyrirkomulags. Það er veruleg þörf á einstaklingum í stjórnsýsluna sem skilja hvað siðferði í stjórnsýslu þýðir. Sem skilja hvað nútímalegt fyrirkomulag í stjórnsýslu felur í sér. Það er því miður þannig að valdagræðgi virðist valda því að einstaklingar missi sjónar af góðu siðferði, hugsjónum og vönduðum vinnubrögðum. Ég velti því fyrir mér hvort að þetta myndi ef til vill lagast ef dregið verður úr bitlingum til stjórnmálamanna.
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
Stjórnsýslufræðingur
![]() |
Trufluðu nauðungaruppboð |
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana. |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
2010-02-10
Þjóðaratkvæðagreiðslan verður að fara fram
Það stendur skýrt í stjórnarskrá.
Það eru ekki gefnar neinar undantekningar frá þeirri reglu í stjórnarskránni.
![]() |
Verður kosið um Icesave? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2010-02-10
Fjör hjá Vinstri grænum
Persónulega fékk ég símtöl frá fólki sem tjáði mér að (2) frambjóðendur væru að bera út óhróður um mig. Ég er eiginlega ákveðinn að gefa kost á mér aftur í næstu kosningum. Þetta er mjög spennandi en þó má kannski segja að fólk sé frekar hugmyndasnautt í óhróðrinum.
Ég tel árangur minn einstaklega góðan þar sem ég hringdi ekki nema tuttugu símtöl og bauð einum sem var veikur að koma til hans kjörseðli en hann afþakkaði.
Það myndi setja mig á hausinn að hringja 300 símtöl enda er ég ekki á bitlingum hjá hinu opinbera.
![]() |
Ávirðingar byggja á sögusögnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2010-02-09
Fár-klikkað samfélag
Margir bíða nú eftir því að geta vaknað á morgnanna án þess að hugsa hvern fjandann gera stjórnmálamenn af sér í dag? Hvaða vitleysingar verða dregnir upp úr einhverri holu og falið trúnaðarstörf? Hvernær kemur sá dagur sem þessu kjaftæði lýkur?
Fjórflokkurinn er samur við sig. Endalaust klúður sem Kristrún heimisdóttir vill ekki kalla klúður en talar samt um að sé klúður hefur sett landið í grafalvarlega stöðu.
Enginn er sekur um neitt
Þorgerður Katrín vissi ekki að hún stakk undan 850 milljónum inn í einkahlutafélag
Árni þór græddi milljónir (sem hann vill ekki nefna) af hugsjón
Össur græddi 30 milljónir af einskærri heimsku eða barnaskap að því er virðist
Bjarni Ben skrifaði undir þjófnað upp á 10 milljarða óvart og græddi á því sálfur óvart
Hin nýja skæra stjarna stjórnmálanna Tryggvi Þór Herbertsson lét hlutafélag lána sjálfum á "gráu svæði"
Ásgrímur Óttarsson greiddi sjálfum sér ólöglega en hann er önnur skær stjarna sjálfstæðismanna.
....og þjóðin virðist treysta fórflokknum best
![]() |
Senda út athugasemdabréf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Gefur einfaldlega ekki upp skoðun á eigin verkum eftir því sem hann tjáir mönnum á RUV.
Það er ekki furða þótt þessi einstaklingur sem er með stúdentspróf hafi ekki þurft að láta uppi skoðanir eigin verkum. Maður sem hefur ekki þurft að sækja um vinnu í áratugi heldur bara þegið bitlinga frá stjórnmálaflokkum.
Hrokagikkur fandans gubbar út úr sér kenningum sem hann rökstyður á engann hátt í útvarpi allra landsmanna. Hrokinn er yfirgengilegur og í góðri samsvörun við hroka Steingríms sem kallar erlenda sérfræðinga sem virtir eru á heimsmælikvarða snillinga.
Ég held að þessir stúdentar ættu að fara að hugsa sinn gang og horfast í augu við eigin vanmátt fremur en að rakka niður alvöru þekkingu.
Kerfi innstæðutrygginganna er einfaldlega þannig að það er tryggingarsjóðurinn sem er skuldbundinn.
Samkvæmt þessu kerfi er ekki heimilt að veita þessum sjóði ríkisábyrgð.
Þetta felst í Brussel viðmiðum sem Svavar Gestsson segist hafa farið eftir við gerð Icesavesamningsins.
Svavari Gestssyni finnst flott að hafa getað frestað greiðslubyrðinni í sjö ár en að þeim tíma liðnum verður hann og margir þeir sem aðhyllast þennan samning komnir á eftirlaun og aðrir teknir við.
Kostnaðinn af þessari frestun á að legga á komandi kynslóðir.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2010-02-09
Flækur sem fáir skilja
Atburðarásin í Icesavemálinu hefur verið furðuleg frá upphafi.
Tilurð Icesave byggist á spillingu í sjálfstæðisflokki og framsóknarflokki. Glæpaklíkur sem voru hluti stjórnvaldi Íslands stjórnuðu bæði bönkum og lögjöf. Í viðskiptaráði sátu menn og skrifuðu lög sem síðan voru send í gegn u ráðuneytin og inn á Alþingi til stimplunar.
Fyrri ríkisstjórnir og glæpaklíkurnar voru samofnar. Dómskerfinu var spillt með klíkuráðningum. Stjórnsýslunni var spillt með langvarandi klíkuráðningum og fékk það hlutverk að vera varðhundar stjórnvalds og glæpaklíkunnar.
Viðvarandi upplausn hefur ríkt í samfélaginnu enda margir enn við völd sem fléttuðust inn í þessa glæpastarfsemi.
Það voru gríðarleg vonbrigði þegar að Steingrímur Joð stakk sér beint í vasa þessara afla og hélt áfram á sömu braut. Einkavæðing, sala auðlinda, erlendir fjárfestar, stóriðja, skuldaþrælkun unga fólksins og klíkuráðningar eru enn "the buzzwords" í ríkisstjórn Jóhönnu.
Tryggingarsjóður innstæðna ber ábyrgð á skuld við Breta og Hollendinga en það gerir íslenska þjóðin ekki.
![]() |
Lee Buchheit verður ráðgjafi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2010-02-08
Alla þá ráðgjafa og SNILLINGA
Segir Steingrímur
Icesavemálið er eitthvert það undarlegasta sem ég hef orðið vitni að.
Getur það verið að Svavar hafi ekki nennt að kynna sér umboðið sem alþingi veitti*
Því heldur Kristrún Heimis fram.
Getur verið að Svavar hafi ekki nennt að kynna sér Brussel viðmiðin?
Því heldur Kristrún Heimis fram.
Getur verið að Steingrímur hafi verið að berjast í því að troða þessum óþverrasamningi ofan í kok á fólki til þess að vernda snillinginn Svavar.
Undarlegt mál og undarlegir menn.
Hvað varð annars af leyndarmáli Steingríms?
Þessu þið vitið sem hann notaði í hræðsluáróðrinum.
![]() |
Kröfðust pólitískra sátta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2010-02-08
Það sem ekki fer hátt
Sjálfstæðismenn hafa sett þjóðarbúið á hausinn. Sveitafélög og fyrirtæki blæða en almenningur er látinn fármagna bankanna til þess að greiða skuldir Ólafs Ólafsonar sem síðan fær meira gefins.
Ég fékk athyglisvert bréf frá Frakklandi en á síðu Landsbankans segir eftirfarandi:
Reykjavík, 1. febrúar, 2010 - NASDAQ OMX Group, Inc. (Nasdaq:NDAQ) tilkynnti í dag að Clearstream, dótturfyrirtæki Deutsche Börse Group, verði með beina aðild að íslenskum markaði frá og með deginum í dag. Aðild Clearstream þýðir greiðari aðgang erlendra fjárfesta að skráðum hluta- og skuldabréfum hjá Verðbréfaskráningu Íslands.
Í bréfinu frá Frakklandi stóð eftirfarand:
Mér lýst ekki vel á ýmislegt sem er verið að gera og sumt skil eg hreinlega ekki. Dæmi: nýlega tilkynnti Kauphöllin það hróðug mjög að Clearstream væri kominn með beina aðild að Kauphöllinni og að það auðveldaði aðgang erlendra fjárfesta........
![]() |
Fjárhaldsstjórn skipuð |
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana. |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2010-02-07
Þakklæti til kjósenda
Ég vil þakka þeim sem studdu mig í forvali VG en það mun hafa verið drjúgur fjöldi
Þeir sem studdu mig er fólk sem þekkir mig vel
Vinir, vandamenn og fólk sem ég hef staðið við hliðin á í byltingunni
Fólk sem ég treysti eins og það treysti mér