Áródurssnepill andskotans

Hver veit hvers virdi eignir Landsbankans eru eda yfirleytt eignir nokkurs banka. Fréttamennska á bord vid ruglid sem borid er á bord fyrir landsmenn stendur ekki undir nafni og svona skrif eru módgun vid dómgreind thjódarinnar.

Björgólfur Thor er kominn í heiftarlegan áródursham med Ragnhildi á mála og nú ad tví virdist einnig moggan og skilanefnd Landsbankans.

Ef eignir Landsbankans staedu undir vaentingum thá vaeru Hollendingar og Bretar ekki ad gera adsúg ad íslenskum skattgreidendum.

Afsakid thetta er skrifad á saenskt lyklabord.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heil og sæl; Jakobína Ingunn, æfinlega !

Ekkert að afsaka; sænska lyklaborðið - miklu fremur, ber að þakka þér, fyrir þína vakt, sem og ádrepur þarfar.

Með beztu kveðjum; sem jafnan /

Óskar Helgi 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 23.8.2010 kl. 22:21

2 identicon

Umræðan hér er útþynnt og afvegaleiðandi. Stöðugt er talað niður til almennra borgara. Óvitar/börn sem hnupla karamellu í búð BónusFeðga eru hirtir upp af lögreglu, kallaðir þjófar og handtekin. Stórglæpamenn Hrunsins eru mærðir. Talað er um "fjárglæframenn" og þvælt er um að bankar/sjóðir hafi verið "hreinsaðir/ryksugaðir að innan" þegar í raun forhertir, einbeittir stór-afbrotamenn - hvítflibbaglæpamenn - voru að verki beggja vegna borðsins.

Enda, líttu á eignarhald fjölmiðla hér og raunverulega eigendur. Staðan er súrrealísk og í raun til skammar fyrir ríki sem kennir sig við lýðræði.

Ég get aðeins hvatt kjósendur til þess að fara að HUGA að næstu kosningum. Viltu stuðla að breytingum hér á landi eða viltu kjósa áframhaldandi spillingu og óréttlæti ? Það er ekki ráð nema í tíma sé tekið.

Hákon Jóhannesson (IP-tala skráð) 23.8.2010 kl. 22:33

3 Smámynd: Margrét Sigurðardóttir

Þetta er svo sannarlega rétt hjá þér: við fáum engar almennilegar upplýsingar. Öll fréttamennska hér gengur út á að taka við þeim sem vilja koma og endursegja það sem þeir segja. Hvernig var ekki með greiningardeildir bankanna? Heita ekki deildirnar bara eitthvað annað og halda áfram að dæla upplýsingum í frétta- og blaðafólk sem étur allt upp hrátt og matreiðir sem frétt en er bara endursögn?

Margrét Sigurðardóttir, 23.8.2010 kl. 22:53

4 identicon

Svo illa er komið fyrir Íslendingum að engir komast að stjórnmálum, nema þeir sem hafa nóg af peningum, og þá er ekki verið að hafa áhyggjur af því hvaðan þeir eru ættaðir, hreinir eða skítugir. Fátt kemur því til að breytast, nema fólk sjái það að landsmenn eru ekki færir um að stjórna sér sjálfir, frekar en Indíánar USA voru, fyrir meira en 200 árum, þegar þeir seldu hvíta manninum auðlindir sínar fyrir bíla og alkóhól ásamt ýmsu fánýtu glingri, hlutu fyrir það ævarandi fyrirlitningu. Þetta vilja fjöldi óreiðuskuldara á Íslandi gera í dag, selja auðlindir landsins til að bjarga sér útúr eigin skuldaklandri, svo er að sjá að elítan hafi þegar gefið fyrirmæli til spilltra mútuþega sinna í pólitíkinni að bjarga þeim úr snörunni þannig. Þetta sjá útlendingarnir og það hlakkar í þeim að verða vitni að því að landsmenn séu ekki á hærra plani en Indíánafyllibytturnar voru fyrir meira en 200 árum síðan.

Robert (IP-tala skráð) 23.8.2010 kl. 23:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband