Gott væri ef heilbrigð skynsemi væri á innleið og fjórflokkurinn á útleið

...Eigum við ekki bara að þakka fyrir okkur og segja bless.

Nú hefur stjórnmálastéttin verið að stríplast í tvö ár og sífellt fleiri sjá hana með augum barnsins.

Viðvarandi stjórnmálaóreiða í áratugi. Rætur vandans liggja íóhæfu kerfi og vondri stjórnmálamenningu. Eins og einn ágætur sveitastjóri á Suðurnesjum benti okkur á, við lítinn fögnuð femínista, stjórnmálakerlingarnar eru ekki að vinna sitt verk.

Stjórnmálin eru ónýt til síns brúks. Stjórnmálastéttin hefur hirt stjórnmálin af almenningi og gert þau að leikvelli græðgiafla. Til þess að tryggja framtíð barna okkar þurfum við að ná stjórnmálunum af stjórnmálamönnunum. Tryggja að uppspretta valdsins sé hjá þjóðinni og að ákvarðanir valdhafanna endurspegli vilja almennings.

Stuðningssíða:

http://www.facebook.com/pages/Jakobina-Ingunn-Olafsdottir-a-stjornlagabing/161385473872928 


mbl.is Innistæður hafa minnkað um 90,7 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband