SVÍAR: tillögu um lán til Íslendinga hefði verið frestað!

Mér voru að berast fréttir af því að fyrirtaka tillögu um lán til Íslendinga hefði verið frestað til 23. janúar. Sjá hér.

Nú verðum við að halda áfram að skrifa sænskum þingmönnum ég birti lista á eftir yfir netföng á eftir.

Fleiri þingmenn þurfa að fá bréf frá okkur!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

gott

Hólmdís Hjartardóttir, 20.1.2009 kl. 15:20

2 Smámynd: Marinó Óskar Gíslason

Þetta er alveg týpískt fyrir þá sem kalla sig vinaþjóðir. Þegar á reynir eru þeir ekkert betri en hinir sem vilja ekki af okkur vita. Eru bara eins og snúið roð í hund.

Marinó Óskar Gíslason, 20.1.2009 kl. 15:39

3 identicon

Við getum þakkað okkur þetta að einhverju leyti. Geturðu fundið slóð að umræðum um tillöguna á sænska þinginu? Það er forvitnilegt að lesa hvað þingmennirnir á sænska þinginu segja um ástandið hérna.

Theódór Norðkvist (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 15:40

4 Smámynd: Björgvin R. Leifsson

Nú ert þú eitthvað að misskilja, Marínó. Við viljum ekki að Svíar (eða aðrar þjóðir) láni núverandi ríkisstjórn Íslands peninga því hún kann ekki með þá að fara.

Björgvin R. Leifsson, 20.1.2009 kl. 15:42

5 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Theodor það er ekki búið að setja neitt undir það sem svíar kalla "förslagspunkter" svo að umræðan er ekki opinber. En ég hef frétt að þeir vilja fleiri bréf og að fleiri þingmenn fái bréf frá almenningi.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 20.1.2009 kl. 15:52

6 identicon

Það verður að sækja eftir frekari aðstoð og aðhaldi erlendis frá, hvernig svo sem það er gert.

Í raun er þetta neyðarkall og með ólíkindum að þurf að uppplifa það hvernig valtað er hér gjörsamlega yfir fólk á öllum sviðum nánast.  Niðurlægingin er alger fyrir okkur íslendinga.

Bara eitt nýlegt dæmi þar sem undirbúin er handtaka fleiri hundrað manna vegna vanskila.  Að ríkisstjórnarmenn skuli ekki hafa getað sest  yfir þetta mál - neyðarástand og breytt verklagreglum og vinnuferlum við innheimtu - er með öllu óviðunnandi.  Eðlilegasti hlutur í heimi er að það sé slakað á núna um skeið meðan að ástandið stabiliserast.

Frumkvæði er komið frá almenningi nú þegar og það verður að hada áfram.

Hákon Jóhannesson (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 15:54

7 Smámynd: Guðni Karl Harðarson

Hákon og Theódor ég hef verið að skrifa bréf á ensku þar sem ég kem smávegis inn á hvernig staðan er ásamt fleirum. Fullt af fólki hafa þegar sent. Sumir eru að senda eigin útgáfu og aðrir að senda útgáfu frá öðrum eins og Jakobínu. Ég sjálfur er búinn að senda þrisvar á Svía. Sænsku útgáfuna þá fyrstu, enskuútgáfuna og svo mína eigin.

En mín eigin fer á fleiri lönd eins og Færeyjar, Finnland og fleiri.

Mér fannst þetta vera frábært framtak hjá henni Jakobínu að komast í samband við sænska þingmenn. Það verður að sýna heiðvirðum þingmönnum úti í heimi hverngig staðan er og hversu siðlausir íslenska Ríkisstjórnin er að segja ekki afsér eins og flestir úti í heimi hefðu gert við sömu og svipaðar aðstæður! Aðhald og aðstoð getur líka komið fráheiðvirðum þingmönnum út um allan heim.

Guðni Karl Harðarson, 20.1.2009 kl. 20:51

8 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Jakobína, þú er mögnuð

Arinbjörn Kúld, 21.1.2009 kl. 00:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband