2010-11-23
Sennilega betur setið heima
![]() |
Fór með síðasta gjaldeyrinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2010-11-23
Ekki kjósa fúla kallinn...
... mættu á kjörstað á laugardag og gefðu framtíðinni atkvæði þitt.
Kjósum fólk sem hefur þekkingu til þess að takast á við verkefnið og stendur með þjóðinni á stjórnlagaþing. Við viljum fólk sem hefur ekki tengt sig í fyrirgreiðslukerfi flokkanna.
![]() |
Endurskoðun niðurskurðar í hættu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2010-11-23
Hvað þýðir þessi frétt
Þýðir þetta að álverin framleiði aðeins meira? Flytji inn hráefni og flytji út hráefni án þess að skilja eftir virðisauka í landinu.
"Hagstofan reiknar með að fjárfesting taki að vaxa árið 2011, jafnvel þótt ekki sé gert ráð fyrir framkvæmdum við

álver í Helguvík fyrr en 2012, en sé enn lág í sögulegu samhengi. Samdráttur í samneyslu haldi áfram næstu ár."
Samdráttur í samneyslu þýðir að fyrirhugað er að ríkið hætti að fjármagna velferðarþjónustu og að kosnaðurinn af henni verði færður yfir á einstaklinga.
Þetta veldur mismunun. Sumir hafa ekki fjármuni til þess að kaupa þessa þjónustu og þeir munu því líða fyrir það með verri heilsu, minni menntun o.s.frv.
![]() |
Tæplega 2% hagvöxtur 2011 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2010-11-23
Sérstaða í hverfisskóla?
Menntamálaráðherra hefur gefið fyrirmæli um að menntaskólar skulu vera hverfisskólar.

Við þær aðstæður hlýtur að vera eðlilegt að skólarnir séu allir eins ef ekki á að skapa mismunun á milli hverfa.
Eða á að hafa eitt iðnskólahverfi, eitt verslunarmenntahverfi og eitt raunvísindagreinahverfi?
Held að það væri í lagi að stjórnmálamenn reyndu að hugsa aðeins.
![]() |
Sérstaða MR í hættu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2010-11-22
Þekkingu á stjórnlagaþing
Vönduð og virk stjórnarskrá verður til í höndum fólks sem hefur þekkingu, reynslu og framtíðarsýn.
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

stjórnsýslufræðingur á
stjórnlagaþing
7319
Mætum á kjörstað og veljum vel menntaða konu sem tekur
atvinnufrelsi, velferð og öryggi almennings
fram yfir þarfir bankaeigenda.
![]() |
Talað var við nærri 500 frambjóðendur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
2010-11-22
Já, en ekki utanbókarlærdóm
Við þurfum að skilja lýðræðið og hlutverk stjórnarskrárinnar sem verndara lýðræðis. Við þurfum að læra að taka þátt í að móta samfélagið.
Þekking er hreyfiafl í mótun samfélags. Þess vegna er skilningur okkar á lýðræði grunnforsenda framfara og réttlætis.

![]() |
Stjórnarskráin verði skyldunám |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2010-11-22
Stuðningur og 20 milljón pund
Frá því segir á Eyjunni að:
Stofnað hefur verið félag áhugamanna um réttláta málsmeðferð í landsdómsmáli Geirs H.

Haarde, fyrrverandi forsætiráðherra. Félagið heitir Málsvörn, og er skráð á Pétur J. Eiríksson, fyrrum forstjóra Icelandair Cargo, og núverandi stjórnarformaður Portus Group. Pétur er einnig stjórnarmaður í Hagar hf.
Geir segir:
Pétur J. Eiríksson og ég höfum verið vinir og samstarfsmenn í meira en 40 ár. Við sátum saman í stjórn Heimdallar og í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna. Einnig unnum við saman sem blaðamenn á Morgunblaðinu í mörg sumur á námsárum okkar beggja,
Pétur er eins og fram kemur í fréttinni stjórnarmaður í Högum sem er eigandi All Saints. Kaupþing og Glitnir hafa samkvæmt frétt Mail Online lánað All Saints 20 milljón pund.
Í Mail Online segir: A new £20million load agreement is paving the way to a 'quantum leap' for All Saints
Hvar fá Kaupþing og Glitnir 20 milljón pund til þess að veita kaupréttarlán? Eru þau tekin af gjaldeyrisvaraforðaláninu sem börnin okkar eiga að borga?
Hverjir eru eigendur Kaupþings og Glitnis?
![]() |
Átelur vinnubrögð landsdóms |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
2010-11-21
Grátbroslegt
Félag herstöðvarandstæðinga er nánast deild í VG.
Pólitískt brölt á Íslandi virðist ekki vera annað en umgjörð utan um framapot stjórnmálastéttarinnar.

![]() |
Vinstri stjórnin styður NATO |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2010-11-21
Þæga hjörð sem lætur teymast í ógöngur
Þegar ég sat á flokkráðsfundi Vinstri grænna í fyrra mátti sjá klapp dírigenta úti í sal sem stýrðu lófaklappi við ræðu formanns flokksins. Lilja

Mósesdóttir segir nú:
"Stjórnarflokkar líkjast meir og meir gömlu kommunistaflokkunum eftir því sem gagnrýnin á forystuna eykst bæði innan og utan þeirra. Fundir verða að hátíðarsamkomum til að hylla leiðtogana og hjörðin er rekin á bás til að klappa og greiða atkvæði í samræmi við vilja leiðtoganna. Kjósendur horfa agndofa á leiksýninguna og öskra á uppstokkun en ekkert mun gerast fyrr en boðað verður til kosninga.
Ég hef velt því fyrir mér hvers vegna hlutirnir eru svona inni í flokkunum. Foringjarnir velja í kring um sig viðhlæjendur. Ungt fólk og óharðnað á mestan möguleika á frama. Hvers vegna? Jú foringinn velur sér hirð fólks sem hann getur mótað og haft í strengjum. Hann vill ekki andóf. Hann vill þæga hjörð sem hann getur teymt með sér út í ógöngurnar.

Flokksræðið er því eitur fyrir samfélagið.
Persónukjör er ágæt lausn á þessum vanda.
![]() |
Líkjast kommúnistaflokkunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
2010-11-20
Kjörlendi spillingar
Hver talar um landið sitt sem kjörlendi fjárfestinga? Jú Sigmundur Davíð. Hví ætti honum ekki að finnast Ísland vera kjörlendi fjárfestinga? Hann getur kannski uppfrætt okkur um það þegar faðir hans, fyrrverandi þingmaður framsóknarflokksins Gunnlaugur Sigmundsson, sá um að selja eign varnarliðsins fyrir hönd ríkisins. Hver keypti Kögun og hvernig var það

fjármagnað?
Jú á þeim tíma hefur Ísland örugglega verið kjörlendi fyrir fjárfestingar fjölskyldu Sigmundar Davíðs ekki síður en kjörlendi pólitískrar spillingar.
Ég vil ekki hafa Ísland sem kjörlendi pólitískrar spillingar. Ég vil Ísland sem virðir leikreglur sem boða jöfn tækifæri.
Þeir heiðursmenn Guðmundur Rúnar Guðmundsson og þórður Grétarsson framleiddu þetta vandaða myndband og kann ég þeim þakkir fyrir.
Ólíkt Sigmundi Davíð hef ég sjálf þurft að grafa mína skurði í lífinu. Ég er því þakklát Guðmundi Rúnari og Þórði fyrir að gefa mér sitt framlag.
Fimmþúsund kallarnir mínir fara í að bjóða börnunum mínum á Harry Potter, gefa þeim að borað fram að mánaðarmótum.
Það kemur ekki að sök því ég hef höfuðið, hendurnar og fæturnar í minni þjónustu fram að kosningum.
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir 7319
![]() |
Ráðist að grunnstoðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.11.2010 kl. 04:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)