Birtingarmynd vangetu hins opinbera

Riki og sveitafélög eiga að hafa tækin og þekkinguna til þess að tryggja að skipulag sé í lagi varðandi

cod

 þjónustu við þá sem þurfa á því að halda. 

Er ekki eitthvað ámótlegt við það þegar að sviðstjóri velferðarsvið kvartar í stað þess að vinna í málinu.

Vissulega eru biðraðir eftir mat smánarblettur á samfélagi sem hefur aðgang að meiri auðlindum en flestar þjóðir.

Ónýt stjórnmál, spilling og græðgi þeirra sem makað hafa krókinn hafa skapað biðraðir eftir mat.  

Úr fréttariti skattstjóra:

Þeir eignaminnstu eiga ekki mikið í fasteignum en skulda langt umfram eignir. Þeir sem eiga á milli 10-30 milljónir hafa sett nánast allt sitt fé í fasteignir (um 50% allra heimila). Þeir sem eiga undir 40 milljónum skulda mikið hlutfallslega. Þetta eru þeir hópar sem borga lungan af fjármagnstekjum þeirri eignameiri. Þetta er meirihluti borgaranna (yfir 80 þúsund heimili) og hryggjarstykkið í vinnuframlagi og verðmætasköpun samfélagsins. Þetta eru þeir sem verða verst fyrir barðinu á stökkbreyttum verðtryggðum lánum. Yfir 100 milljóna hópurinn er kannski um 3,5% samfélagsins. Þessi hópur fær mestan hluta þess virðisauka sem samfélagið skapar. Aðallega í gegn um háa vexti. Þessi gröf sýna okkur mjög vel hverjir eru skjólstæðingar hávaxtastefnu stjórnvalda.

tiund.3

Magnús Orri Schram segir um ástandið:

Það er algert glapræði að víkja frá þeirri efnahagsstefnu sem mörkuð hefur verið í samstarfi við AGS. Vissulega má endurskoða einstaka hugmyndir um niðurskurð í fjárlagafrumvarpi, en rammi þeirra þarf að halda. 


 

 http://framtidislands.is/


mbl.is Deila á matargjafir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað gerist þegar að lögreglumenn fara að mótmæla?

Íslenskir mótmælendur eru friðsamir samanborið við gríska mótmælendur. Miklar áhyggjur eru innan ESB vegna ástandsins í Grikklandi. 

Það er fjármálakerfinu mikilvægt að halda friðþægingu almennings á meðan verið er að ræna hann.  


mbl.is Óeirðir í Aþenu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sandkassaleikurinn heldur áfram...

Sjálfstæðisflokkurinn vill að kvótagreifarnir fái meiri kvóta og byggja fleiri álver. Flokkurinn virðist ekki vera enn búin að fatta hvernig hann setti þjóðarbúið á hausinn.

13636_NpAdvMainFea

Það er til orðatiltæki sem varar við því að setja öll eggin í sömu körfu. Sjálfstæðisflokkurinn virðist ekki hafa skilið enn hvað þetta orðatiltæki þýðir. Heldur kannski að þetta eigi bara við um hæsnaræktarbændur.

Margbreytileiki í atvinnusköpun dregur úr áhættu og sveiflum.

Margbreytileyki í atvinnusköpun auðgar mannlífið.

Margbreytileiki í atvinnusköpun eflir gildi þekkingar og fjölgar valkostum á atvinnumarkaði. 


mbl.is Jóhanna: sit út kjörtímabilið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Betra en golfvöllur

Hanna Birna vildi setja 200 milljónir í golfvöll fyrir kosningar en við getum glaðst yfir því að borgarbúar voru ekki á þeim buxunum að greiða því atkvæði. 

542528B

Ástandið hjá fjölda fólks er að verða nokkuð grafískt með lengingu biðraða eftir matargjöfum, fjöldamótmælum, tölum um atvinnuleysi og uppboði á heimilum. Myndir á borð við þá sem er hér til hliðar eykur skilning okkar á ástandinu og meðvitund okkar um það nú er ekki rétti tíminn til þess að hugsa um nýja golfvelli á kostnað borgarbúa. 

Ef ég man rétt þá samþykkti Hanna Birna líka byggingu tónlistahallar. það er voða gaman að eiga fína tónlistarhöll en fyrst þurfum við að tryggja að að börnin okkar fái að borða.  

Vinkona mín sem var í framboði fyrir borgarstjórnarkostningar sagði mér að flestir frambjóðendur og jafnvel fjölmiðlar hefðu gert sér litla grein fyrir alvöru ástandsins og hvernig þetta ástand myndi skila sér inn í rekstrarreikning borgarinnar. 

 


mbl.is Stefnt að hærri fjárhagsaðstoð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Taka ekki þátt í að þrífa upp eftir sig

Formaður sjálfstæðisflokksins telur sig hafa borðliggjandi lausnir á þeim vanda sem sjálfstæðismenn og framsókn hafa komið þjóðinni í. 

Jú lausnin að mati Bjarna Ben er ráðherrastóll undir óæðri endann á Bjarna Ben og svo á bara að byrja á sama sukkinu aftur.

Framsóknarflokkurinn sem ávallt hefur selt sig hæstbjóðanda og stutt sjálfstæðiflokkinn ærlega við að koma þjóðarbúinu á hausinn talar um fyrirvara miðað við það sem á undan er gengið.  

Velti því fyrir mér hvort að í atvinnu- og markaðsáætlun ríkisstjórnarinnar séu ekki nægileg tækifæri fyrir þá til þess að maka krókinn.


mbl.is Hafa fyrirvara á samráði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grafískur hönnuður dæmdur fyrir að starfa við grafíska hönnun


Samfélagsleg afturför og hnignun

það er skelfilegt að upplifa samfélagslega afturför og hnignun. 

Þegar ég var að stíga inn í mín fullorðinsár einkenndist tíðarandinn af

DV1003107559_03_jpg_620x800_q9521

 bjartsýni.

Áfangastaðurinn réðst af þeirri leið sem valin var og ungt fólk var kvatt til dáða.

Jafnvel þótt að sum ár væru verri en önnur vegna aflabrests vann kerfið með fólki.

Fólk lagði fyrir, keypti sína fyrstu íbúð og greiðslubyrðin rénaði á nokkrum árum.

Hvernig er komið fyrir samfélagi sem sendir ungt fólk í biðröð eftir mat.

Stjórnmálin eru ónýt

Fjórflokkinn út og skynsemina inn takk

 http://www.facebook.com/pages/Jakobina-Ingunn-Olafsdottir-a-stjornlagabing/161385473872928


mbl.is Sífellt fleiri þurfa aðstoð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott væri ef heilbrigð skynsemi væri á innleið og fjórflokkurinn á útleið

...Eigum við ekki bara að þakka fyrir okkur og segja bless.

Nú hefur stjórnmálastéttin verið að stríplast í tvö ár og sífellt fleiri sjá hana með augum barnsins.

Viðvarandi stjórnmálaóreiða í áratugi. Rætur vandans liggja íóhæfu kerfi og vondri stjórnmálamenningu. Eins og einn ágætur sveitastjóri á Suðurnesjum benti okkur á, við lítinn fögnuð femínista, stjórnmálakerlingarnar eru ekki að vinna sitt verk.

Stjórnmálin eru ónýt til síns brúks. Stjórnmálastéttin hefur hirt stjórnmálin af almenningi og gert þau að leikvelli græðgiafla. Til þess að tryggja framtíð barna okkar þurfum við að ná stjórnmálunum af stjórnmálamönnunum. Tryggja að uppspretta valdsins sé hjá þjóðinni og að ákvarðanir valdhafanna endurspegli vilja almennings.

Stuðningssíða:

http://www.facebook.com/pages/Jakobina-Ingunn-Olafsdottir-a-stjornlagabing/161385473872928 


mbl.is Innistæður hafa minnkað um 90,7 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rányrkja fjármálakerfisins

Sjálfbærir bankar stuðla að verðmætasköpun í samfélaginu fremur en að þjóna rányrkju bankaeigenda.

Nú, tveimur árum eftir hrun fjármagnsmarkaðanna, taka þrír bankar við Náttúru- og umhverfisverðlaunum Norðurlandaráðs.Cultura Bank í Noregi, Ekobanken í Svíþjóð og Merkur Andelskasse í Danmörku. Þeir fá umhverfisverðlaunin fyrir sjálfbæra bankastarfsemi.

Verðlaunin verða afhent á Íslandi þann 3. nóvember sem er táknrænt því Ísland er það land sem meira en nokkurt annað hefur fundið fyrir því hversu mjög skortir á að

stjornlandsbanka2007_jpg_550x400_q95

 bankakerfið sé sjálfbært. Verðlaunahafarnir færa hér rök fyrir því að tími sé kominn til að huga að nýju að grundvallarverkefni bankanna; Að skapa verðmæti fyrir þjóðfélagið, ekki einungis örfáa hluthafa, og þar með draga úr hættu á annarri fjármálakreppu. sjá: http://www.norden.org/is/a-doefinni/greinar/samfundsnyttig-bankvirksomhed-2013-utopi-eller-realitet

Það er merkilegt að spurt sé hvort bankar sem ekki ræna samfélagið séu draumsýn eða hvort þeir geti verið raunveruleiki.

Sýnir vel firringu manna sem eiga erfitt með að trúa því að fyrirtæki geti þjónað almennri velsæld. 

Myndin sýnir bankastjórn Landsbankans sem skipulega vann að því með markaðsmisnotkun að hlunnfara almenning.  


mbl.is Engin skref stigin fyrr en í mars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Suðurnesin eru rík af auðlindum

Suðurnesjamenn eiga ríkidæmi í auðlindum. Jarðvarminn, sjávarauðlindin, alþjóðaflugvöllur og ónýttur mannauður ætti að vera uppspretta tækifæra og framfara á svæðinu.

Hvað hefur þá farið úrskeiðis?

Atvinnuuppbygging

Umræðan um álver í Helguvík er suðupottur. Eina vonin í hugum margra. Ég er þeirrar skoðunar að manneskjan eigi að vera í fyrsta sæti og náttúruvernd eigi ekki að hamla því að maðurinn geti lifað af landinu. Við verðum þó að stíga varlega til jarðar og muna að börnin okkar þurfa líka að lifa af landinu. Stjórnarfar á Suðurnesjum hefur bent til þess að ýmsir forystumenn hafi ekki séð fram yfir næstu mánaðarmót í stefnumótun og ákvarðanatöku.

 

Reykjanesbær hefur verið skuldsettur upp í rjáfur án þess að þess sjáist merki í aukinni velsæld og atvinnusköpun. Vonandi vilja menn ekki meira af slíku. Fjárfestingar þurfa að skila viðvarandi atvinnusköpun, ekki bara næsta mánuðinn eða næstu tvö til þrjú ár. Vandann þarf að leysa til framtíðar. Um þessar mundir eru um 1500 manns

Svartsengi

 atvinnulausir á svæðinu.

 

Myndin er eftir  Eyjólf Vilbergsson

 

Frumréttur byggðarlaga

Með því að einblína á álver í Helguvík er verið að halda umræðu um aðra valkosti í gíslingu. Ég vil sjá að HS orka verði tekin úr höndum á þeirra sem keyptu nýtingarréttinn fyrir kúlulán og hrunkrónur. Jarðvarmaauðlindin er fæðingarréttur Suðurnesjamanna sem hafa fest þann rétt í sessi með því að standa að uppbyggingu mannvirkja sem skapa verðmæti af þessari auðlind. HS orka skipti um hendur vegna athafna fjárglæframanna í stjórnmálum og bönkum.

 

Að sækja fiskimiðin er hefðarréttur íbúa á Suðurnesjum sem sótt hafa sjóinn í aldir. Að meina fólki að sækja sér lífsbjörg i þessari atvinnugrein er brot á mannréttindum.

armann_09092010hofn470

 

Orkan úr iðrum jarðar á að styrkja fyrirtæki á Suðurnesjum en ekki að veikja þau með því að láta þau greiða niður orku til stóriðju eins og nú er gert. Ef Suðurnesjamenn fengju að nýta sér sjálfir orkuna sem þeir sjálfir hafa byggt upp myndi þeim reynast auðvelt með aðgangi að hóflegu fjármagni að byggja upp ilrækt og aðra mannfreka starfsemi sem leysir atvinnuleysisvandann á Suðurnesjum. Nándin við alþjóðaflugvöll gerir íbúum auðvelt að koma ferskri vöru á erlenda markaði.

 

Munurinn á smáiðnaði og fyrirtækjarekstri annars vegar og stóriðju hins vegar er í stórum dráttum fyrir heimamenn að arðsemin af rekstri heimamanna skilar sér í vasa þeirra sjálfra og skattinum til bæjarfélagsins. Stóriðjan flytur hinsvegar arðinn úr landi og kemur sér undan því að greiða skatt með því að flytja skuldir erlendra móðurfyrirtækja á álverin hér á landi. Ég hvet því fólk að hugsa um atvinnuuppbyggingu í stærra samhengi.

 


mbl.is Reikna með 200 milljóna halla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband