Meiri hluti borgarstjórnar sýndi ókurteisi

Meiri hluti borgarstjórnar var ekki hrifin af því að borgarbúar beittu lýðræðisrétti og málfrelsi á pöllum borgarstjórnar.

Borgarar vildu fá svör við spurningum og einnig leiðrétta ýmiskonar misskilning meirihluta borgarstjórnar.

Ég gerði frammíkall en veit ekki hvort það getur talist til dónaskapar eða hvað finnst ykkur:

Þekkir þú Finn Ingólfsson?“

mynd
Óskar svaraði mér ekki.

 


mbl.is Heitt og rafmagnað í Ráðhúsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enda eru þau búin að gera þjóðina að öreigum

Lítum aðeins á afrek stjórnmálamanna:

Fullveldi Íslands --> Afsalað með leynisamningi til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins

Mannréttindi --> fótum troðin í íslensku réttarkerfi og af stjórnvöldum

Alþingi --> hefur verið vanhelgað og gert að stimpilstofnun viðskiptaráðs og valdhafa sem ganga erinda kjölfestufjárfesta

Lýðræði --> Þrískipting valds hunsað, stjórnarskráin hunsuð og úrellt í nútíma samfélagi og löggjafarvaldið misnotað í þágu fjárglæframanna

Icesave --> Komandi kynslóð gerð að skuldaþrælum Breta og Hollendinga með einu pennastriki

50 ríkisstofnanir --> til einkavina og í sumum tilfellum með einokunarsamningum við ríkið

Sjávarmiðin --> Gefin fámennum hóp manna sem hefur braskað með þau

Vatnsaflvirkjanir --> Arðinum af þeim afsalað til útlendinga með leynisamningum

Bankarnir --> Gefnir glæpamönnum sem jafnvel borguðu ekki fyrir þá og skiluðu þeim aftur með um 8.000 milljarða skuld

Jarðvarmaauðlindir--> seldar til skúffufélags með kúluláni með veði í sjálfu sér

Jarðvarmaauðlindir --> afhentar erlendum kröfuhöfum í gegn um Íslandsbanka

Nýju bankarnir --> gefnir erlendum kröfuhöfum og íslenskir skuldar settir á náð þeirra

Vatnsréttindi --> seld útlendingum á gjafvirði (Snæfellsnes og Hafnafjörður)

Landsvirkjun --> stórskuldug þrátt fyrir góðan rekstargrundvöll...vegna lélegra samninga við útlendinga

Orkuveita Reykjavíkur --> var stöndugt skuldlaust fyrirtæki þegar Finnur og Alfreð settu puttanna í það en er nú veðsett upp í rjáfur.

Dómstólarnir --> njóta ekki trúverðugleika vegna klíkuráðninga

Ríkisstofnanir --> starfsemin einkennist af vanhæfni vegna klíkuráðninga. Hafa verið gerðar að valdatæki stjórnmálamanna og bregðast hlutverki sínu að standa vörð um velferð almennings


mbl.is Fáir telja forsetann sameiningartákn þjóðarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru Íslendingar dofnir fyrir ágengninni

Íslandsbanki er að hverfa ofan í vasann hjá útlendingum og þar með góður biti af íslenskum skuldurum.

Hlutdeild í Hitaveitu Suðurnesja fylgir með í kaupunum og er þar með komin í eign útlendinga

Borgarstjórn ætlar að ganga frá sölu á annarri hlutdeild í Hitaveitu Suðurnesja í dag.  

Spánverjar ásælast íslensk fiskimið.  Diego López Garrido, ráðherra Spánverja í Evrópusambandsmálum, segir  að Spánverjar muni “hafa mikið að segja” til að tryggja veiðiréttindi sín eftir að viðræður Íslendinga og Evrópusambandsins hefjast á næsta ári, enda íslensk fiskimið talin “fjársjóður” í augum spænska veiðiflotans.

Ásbjörn Óttarsson gerð leynisamningu við fjárglæframanninn Ottó Spork um sölu vatnsréttinda á Snæfellsnesinu.

Bæjarstjórninn í Hafnarfirði gerði samning við "araba" um vatnsréttindin í Hafnarfirði.

Það verður áhugavert að sjá tengslanet Jóns Jósephs um kvótabraskið.

Arðsemin af orkuverunum hefur verið færð frá þjóðinni til erlendrar stóriðju með leynisamningum.

Hin svokallaða vinstri stjórn er farin að taka þátt í auðlindasölunni og virðist miða að því að Íslenskir skuldarar verði gullnáma erlendra kröfuhafa.


Samfylkingin með 7.3% fylgi

....eða þá að fylgjendur hennar þola ekki bloggið mitt.

Setti upp skoðanakönnun um fylgi flokkanna en samfylkingin fær aðeins 7.3% fylgi.

Samfylkingin er sá flokkur sem þolir alls ekki gagnrýni og gengur lengst í þöggun.

Hafa landsmenn tekið eftir því að þingmenn samfylkingarinnar eru nánast ósýnilegir. Forsætisráðherrann týndur.


Er aulaháttur íslenskra stjórnvalds takmarkalaus?

Landshöfðingi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi getur slakað á því eyðilegging hagkerfisins er komin í fastann farveg og kerfið sér sjálft um að koma auðlindum landsins á brunaútsölu. Vinnubrögð AGS koma ekkert á óvart—stofnunin hefur endurtekið þennan leik út um allan heim í marga áratugi—en vanhæfni íslenskra stjórnvalda virðist vera furðu takmarkalaus.

Svona hefst pistill á vald.org sem ég hvet fólk til að lesa.


Sala Íslandsbanka...fylgir Hitaveita Suðurnesja í kaupunum?

Er fjármálaráðherrann auðlindasölumaður...

Það er eitthvað mjög gruggurt við tengsl Íslandsbanka....Geiser Green Energy....Magma Energy....

Hagsmuni Össurar Skarphéðinssonar, Vilhjálms þ. Vilhjálmssonar, Ólafs Ragnar Grímssonar og Frjámálaráðherrans...

Afskipti valdhafanna af auðlindasölumálum og útrás valda nánast gæsahúð.

forscrop_500x

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

4c433e664ac014ff

 

 

 

 

 

 

Haft var eftir Össuri um REI málið að að honum þætti mikil „viðskiptaleg snilld“ ef tækist að búa til 14–15 milljarða verðmæti „nánast úr loftinu“ fyrir Reykvíkinga með hinu nýja REI

bjarni


En Sjálfstæðismenn vilja brytja landið niður og selja það...

Sjálfstæðismenn eru smám saman að brytja landið niður og selja það í pörtum....Vatnsauðlindirnar á Snæfellsnesi farnar næstu hundrað árin....auðlindirnar á Suðurnesjum næstu 130 árin...land undir stóriðju...vatnsaflsvirkjanirnar í hættu vegna fjárhags Landsvirkjunar og erlendum aðilum verið tryggð arðsemin af þeim...

...sætt að það skuli nú koma útlendingar til landsins sem láta sér annt um það....

Sjálfseyðingarflokkurinn heldur áfram sínu striki.....

Mætið á borgarstjórnarpallana á morgun kl. 14.00 og mótmælið sölu suðurnesja til útlendinga.


mbl.is Bjóða ókeypis þrif og viðhald
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bréf til borgarstjórnar Reykjavíkur

Ég sendi borgarstjórn Reykjavíkur bréf og lýsti yfir vandlætingu minni á áformum um að selja Hitaveitu Suðurnesja.

Ég hvet alla að gera hið sama.

Hér eru netföng borgarfulltrúa:

http://www.rvk.is/desktopdefault.aspx/tabid-2784/4398_view-603/

Minnið borgarfulltrúa á að það eru kosningar til sveitafélaga í haust. Það ætti að hrista upp í þeim.


mbl.is OR segir sölu á HS Orku í samræmi við lög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er hægt að finna skoðanalaust fólk í embætti?

Eða má fólk ekki viðra skoðanir sínar á bloggi í krafti þess að slíkt geti reynst þeim Þrándur í götu ef það sækist eftir embætti?

Ég hefði ætlað að allir Íslendingar hafi skoðanir á bankahruninu og spurningin er að ýta slíku til hliðar við faglega vinnu.

Ég á mjög erfitt með að sjá fyrir mér að vanhæfi geti myndast vegna skoðana á samfélagsmálum.

Jón Magnússon er auðvitað vanhæfur í starfið vegna þess að hann er faðir fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftirlitsins.

Frásögn Jóns af ástæðu ríkisvaldsins til að meta hann vanhæfan speglar vel menningu fáránleikans sem þróast hefur í stjórnarráðinu í áratugi.

Svo virðist vera sem ríkisvaldið gefi sér forræði um það hverra skoðana fólk má vera sem ráðið er í embætti. Þetta vekur auðvitað spurningar um það hvort ekki þurfi að setja lög sem meini embættismönnum að skipta um skoðun.

Er Jón Magnússon sömu skoðana í dag og þegar hann ritaði umrædd blogg? Bloggfærsla er ævarandi vitnisburður á skoðunum manns tiltekin dag sem viðkomandi byggir gjarnan á upplýsingum sem hann hefur aðgang að við það tækifæri.

En ríkisvaldið skyrrist ekki fremur en endranær við að tukta fólk til fyrir að vera ekki í "réttu" fari.


mbl.is Jón dregur umsókn til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Margir Íslendingar heiðarlegir....

Fyrirsögnin í Fréttablaðinu í dag segir að háskólanemar hafa svikið út 300 milljónir í atvinnuleysisbætur.

Þetta fólk hefur reynst ranglega atvinnulaust á svipaðan hátt og Gísli Marteinn reyndist ranglega í borgarstjórn.

Árni Tómason er einnig ranglega formaður skilanefndar því hann er í raun starfsmaður Kjalar félags Ólafs Ólafsonar sem hann situr fyrir í stjórn Alfeska og þiggur milljón á mánuði fyrir.

Þá má einnig spyrja hvort að eftirlaunaþegar eins og Ragnar Arnalds séu ranglega eftirlaunaþegar þegar þeir þiggja sem svarar góðum mánaðarlaunum fyrir nefndarsetur.

Lögmálin að baki reglunum virðast vera reikul. Varla er hægt að álasa háskólanemum að taka sér yfirvöld til fyrirmyndar í sjálfsbjargarviðleitni sinni.


mbl.is Brotamenn frávikshópur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband