2010-07-14
Verndarar íslenskra náttúruauðlinda
Það varð innvígðum og innmúruðum ljóst á níunda áratugnum að fisknum í sjónum var ekki lengur vært vegna ágengni smábátaeigenda sem sífellt vildu ónáða hann með krókum og öðrum tólum. Íslenskir stjórnmálamenn með háleit markmið fengu því togaraútgerðum það mikilsverða verkefni að vernda fiskinn í sjónum fyrir græðgi trillukarla.
Íslenskir stjórnmálamenn sem eru sérstaklega hugvitsamir létu sér þetta ekki nægja því nú ku nokkrir þeirra vera orðnir vansvefta af áhyggjum af því að íslenskt vatn væri fótum troðið og fóru því að leggja á ráðin um að koma vatninu undir verndarvæng fámenns hóps manna. Manna sem eru sérlega vel gerðir og kunna að fara betur með vatn en aðrir menn. Að því er sumir telja jafnvel að breyta því í gull.
Vitsmunir íslenskra stjórnmálamanna eru í sífelldri þróun og áhugi þeirra á gullgerðarmönnum fer vart dvínandi. Tekist hefur að grafa upp Kanadískan gullgrafara sem stofnað hefur fyrirtæki sem hægt er að eyða í einu vettvangi með pappírstætara og mun það þá ekki skilja eftir sig önnur vegsummerki en gáttaða íslenska stjórnmálamenn. Þessi gullgrafari er hinn nýi verndari íslenskra orkuauðlinda.
Heimsk alþýðan er sífellt umhugsunarefni íslenskra stjórnmálamanna. Hvernig stendur á því að sauðsvartur almúginn skilur ekki þessi æðri markmið þeirra?
Jónas.is hefur eftirfarandi um Magma viðskiptin að segja:
Af hverju gerir ríkisstjórnin ekkert í máli Magma? Málið er eins vitlaust og yfirleitt er unnt. Skúffufyrirtæki frá Kanada eru afhentar auðlindir á Reykjanesskaga framhjá lögum og rétti. Fávísir lagatæknar segja, að það sé bara í lagi. Þær kerlingar ætti að reka strax. Ef ekki vill betur, á ríkið að setja neyðarlög um verndun auðlinda. Alls ekki gengur, að landráðafólk í spilltum ráðuneytum túlki lög svo þröngt, að það gangi þvert á anda laganna. Ríkisstjórnin gerir ekkert, því að í eymd sinni og volæði er hún búin að sætta sig við lögbrotið. Kannski hefur einhver fengið eitthvað undir borði.
Á Svipunni er ágæt grein um yfirgang Alþjóðagjaldeyrissjóðinn
![]() |
Undrast ummæli Ögmundar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
2010-07-13
Pissar í skóinn sinn
Sú ómynd sem er á skattkerfinu í dag er að mestu sköpunarverk sjálfstæðisflokksins.
Er Bjarni Benediktsson búin að gleyma að sjálfstæðisflokkurinn gaf glæpamönnum bankanna?
Er Bjarni Benediktsson búin að gleyma að 50 ríkisfyrirtæki sem byggð höfðu verið upp með almannafé voru seld innmúruðum fyrir hraksmán?
Hver keypti Granda...eða SR mjöl...og fleiri fyrirtæki...hvers vegna eru samningarnir að þessu ekki opinberir...?
Í valdatíð sjálfstæðisflokks var virðisaukaskattur lækkaður á matvælum en sú aðgerð hafnaði í vasa kaupmanna.
Ýmsar leikfléttur voru hafðar uppi við að auka skatttekjur ríkissjóðs t.d. hækkun fasteignamats sem dró úr vaxtabótum og barnabótum.
Tekjuskattur er eingöngu lagður á fyrirtæki sem bera hagnað og þola að taka þátt í samneyslunni með því að greiða skatta. Þennan skatt keyrðu sjálfstæðismenn niður.
Ekki nóg með það heldur létu þeir það átölulaust að gríðarlegum fjárhæðum var stungið undan og málamyndagjörningar viðhafðir til þess að tryggja að fyrirtækin tækju ekki þátt í að fjármagna samneysluna í landinu sem þau eigi að síður nýta hvað mest.
Sjálfstæðisflokkurinn kom af stað vítahring sem setti þjóðarbúið á hausinn. Forsætisráðherrarnir sem stjórnuðu þessari ómynd eru:
Davíð Oddsson
Halldór Ásgrímsson
og Geir Haarde.
![]() |
Falleinkunn fyrir ríkisstjórnina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2010-07-13
Leggst sífellt í dróma
Umræðan beinist sífellt að aðgerðum sem fjötra samfélagið í aðgerðaleysi og stöðnun. Áhyggjur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins beinast að aðgerðum sem tryggja yfirráð fjarmálakerfisins sem lúrir á fjármagninu eins og ormur á gulli.
Hugmyndafræði AGS byggir á því að fjármálakerfið lifi sjálfstæðu lífi. Að fjármálakerfið skuli bólgna út og vera feitt. Náttúruauðlindir eru í hugmyndafræði réttmætt skotmark alþjóðafyrirtækja sem vilja ná verðmætasköpuninni úr landinu og færa hana í hendur aðalsins.
Fjármálakerfi er ekki í sjálfu sér verðmætaaukandi. Verðmætin verða til við umbreytingu auðlinda. Með því að nýta þekkingu og mannauð verður óbeisluð náttúra og kraftur mannsins að söluvöru sem aflar tekna og bætir mannlífið. Með því að selja auðlindir og gera fjármálakerfið að blóðsugu á landsmönnum er Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn að dæma komandi kynslóðum döpur örlög.
Núverandi ráðamenn á Íslandi eru sjóðnum auðveldur leiksoppur. Flugfreyjan og jarðfræðingurinn trúa í sakleysi sínu á kenningar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Líta á sig sem bjargvætti þjóðarinnar og að björgunaraðgerðirnar felist í því að gera Íslendinga að skattgreiðendum í Bretlandi og Hollandi. Að færa auðlindirnar í hendur erlendra fjárglæframanna. Að innheimta ólöglegar álögur á skuldara. Að hækka skattaálögur. Að brjóta niður velferðakerfið.
Kenningarnar eru fullar þversagna. Gjaldeyrisvaraforði Íslands hefur aldrei verið eins sterkur og hann er nú en samt sem áður telja ráðamenn nauðsynlegt að afsala valdi til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins með gengdarlausum lántökum og skuldsetningu ríkissjóðs.
Hér er ágæt grein um vandann og ég vek einnig athyglii á ágætum pistlum hér og hér
![]() |
Útilokar ekki skattahækkanir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Vissulega var það áfall fyrir ríkissjóð að seðlabankinn varð tæknilega gjaldþrota rétt fyrir hrun.
Ríkissjóður hafði þá um í nokkur ár gefið út ríkiskuldabréf sem jöklabréfaseljendur fjárfestu í til þess að geta endurgreitt kaupendum jöklabréfa krónuskuldir.
Við gengishrunið urðu jöklabréfaútgefendur, sem eru erlendar bankastofnanir, illa úti með ríkisskuldabréfaeignir sem höfðu hrunið í verðmætum samsvarandi hruni krónunnar.
Már Guðmundsson hefur m.a. fengist við að beila þessa eigendur út með hundruð milljarða sem taka þarf að láni í erlendri mynt.
Ríkisstjórnin er að semja um sexhundruð milljarða lán í gegnum Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Mér skilst að fjármunirnir séu geymdir á reikningi í bandaríkjunum sem greiðir mun lægri vexti en það sem íslendingar þurfa að greiða AGS fyrir lánin. Vaxtamunurinn mun vera um fimm milljónir á dag.
Árið 2005 var gjaldeyrisvaraforðinn um 67 milljarðar. Síðast þegar ég kynnti mér stöðu gjaldeyrisvaraforðans var hann um 500 milljarðaren eigi að síður lætur ríkisstjórnin Alþjóðagjaldeyrissjóðinn telja sér trú um að nauðsynlegt sé að skuldsetja ríkissjóð um hundruð milljarða til þess að byggja enn stærri varaforða.
Þetta þýðir að hundrað milljarðar af tekjum ríkissjóðs fara í það að greiða vexti af erlendum skuldum. Varla verður nokkurn tíma hægt að greiða niður höfuðstólinn ef tekið er mið af vöruskiptajöfnuði komandi ára og vart þessa gríðarlegu vexti sem þá munu leggjast við höfuðstól og auka enn vanda þjóðarbúsins. Vextir greiddir með erlendri mynt en það mun hinsvegar skaða raunstöðu gjaldeyrisvaraforðans. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er hægt og sígandi að draga Ísland inni í mjög varhugavert ástand.
Alþjóðagjaldeyrisjóðurinn skiptir sér að lagasetningu á Íslandi
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er mótfallinn því að farið sé að dómi hæstaréttar
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er er mótfallinnn leiðréttingu stökkbreyttra lána
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er mótfallinn því að ríkissjóður sé að sólunda fé í heilbrigðis- og menntakerfi
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn styður að Íslendingar leggi á flótta en kjörlendi sjóðsins eru láglaunasvæði þar sem stóriðja og alþjóðlegir auðhringir geti athafnað sig.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn styður löngu úreltar villukenningar um hagkerfi. Kenningar sem hannaðar hafa verið til þess að tryggja fámennum hópi gengdarlausann aðgang að fjármagni en keyrir stórann hluta mannkyns í sára fátækt.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn styður að ríkisstjórnir skuldsetji gengdarlaust ríkissjóði og missi þar sjálfdæmi um málefni viðkomandi þjóða.
Á teikniborði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er land í miðju Atlandshafi sem býr yfir miklum auðlindum. Auðlindum sem alþjóðlegir auðhringir og fjárglæframenn ásælast.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn vinnur að því að skapa kjörlendi fyrir fyrir þá sem vilja færa auðlindarentuna úr landi.
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
![]() |
Fimmta hver króna í vexti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2010-07-04
Kjaftar af sér kreppuna
Trichet virðist hafa tekið íslenska ráðamenn sér til fyrirmyndar og gera heiðarlega tilraun til þess að kjafta af sér kreppuna.
það er þó merkilegt hvernig margir hamast nú við að skapa þá ímynd að vinstristjórnin sé að búa til kreppuna sem sjálfstæðismenn sköpuðu með glæpsamlegu framferði.
Helsti vandi almennings er að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn stjórnar landinu, Jóhanna og lið hennar í Samfylkingu eru tilbúin til þess að fórna velferð almennings fyrir inngöngu í ESB og það virðist vera orðið lögmætt í Evrópu að leggja niður velferðakerfi.
Það má vel spara hjá hinu opinbera með því að leggja niður bitlingastöðurnar sem sjálfstæðismenn stofnuðu, afnema ofureftirlaunakerfi stjórnmálamanna, reka vanhæfa ríkisforstjóra, leggja niður seðlabankann sem helst virðist sinna því hlutverki að safna skuldum og halda uppi ofurvöxtum, koma á laggirnar þjóðhagsstofnun sem byggir á atgervi en ekki bitlingaráðningum.
Þá væri ekki úr vegi að skattleggja eldra fólk sem fékk óverðtryggð lán og dreifa þannig kreppubyrðinni.
![]() |
Óttast ekki nýja kreppu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2010-06-28
Ónýtar stofnanir ESB
Hvers vegna ættu Íslendingar að vilja ganga í ESB sem greinilega tefla fram handónýtum stofnunum í baráttu Hollendinga og Breta til þess að komast yfir framtíðartekjur íslendinga.
Icesave samningurinn (réttnefni nauðungarsamningurinn) stílar á það að skattheimta á Íslandi mun hækka að því marki að landið verði óbyggilegt. Einhverra hluta vegna vilja Jóhanna og Samfylkingin ganga í eina sæng með þeim sem vilja flæma fólkið úr landi.
Nú þegar er fólksflóttinn hafi og æ fleiri munu sogast inn í hringiðu sem skapast af lækkuðum launum, meiri klíkuskap þegar barist verður um brauðmolanna, aukinni skattheimtu, auknum skuldum, auknu vöruverði og afnám sjálfdæmis í verlagningu á orku og annarra verðmæta sem auðlindirnar veita.
![]() |
Vekur upp spurningar um hæfi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2010-06-28
Segja þeir það sem skiptir máli?
Landstjórinn og fulltrúar Alþjóðagjaldeyrisstjóðsins nota fullt af orðum sem hljóma mikilúðleg en hafa þó enga merkingu í eyrum almennings. Þeir tala um stabilizers, economy, national product og economic growth. Þeir láta gjarnan hjá líðast að koma því á framfæri að þetta eru markmið sem þjóna stóriðju og fjármálafyrirtækjum en skaða skattgreiðendur og íbúa landsins.
Þeir reyna að skýla þeirri staðreynd að þeir stjórna í raun landinu en ekki Jóhanna og Steingrímur eins og margir vilja vera láta.
Eitt af vandamálum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er að hann hefur ekki vald yfir dómstólum landisins og forseta Íslands. Þessir aðilar hafa verið að valda Alþjóðagjaldeyrissjóðnum vandræðum.
![]() |
AGS boðar blaðamenn á fund |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2010-06-27
Friður vottur um ofbeldi eða samhljóm
Ásýnd friðar getur verið afleiðing af þöggun eða afleiðing af því að allir séu sammála.
Snærós er ung og virðist nú þegar hafa einsett sér að taka afstöðu með valdinu og setja sig upp á móti átökum sem óumflýjanlega fylgja lýðræði og tjáningarfrelsi.
Ég fékk póst frá Samfylkingunni í dag og birti hér svar mitt til flokksins:
![]() |
Fullorðið fólk talar saman |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn vill beita því snilldarbragði að láta skuldara reisa við bankanna með ólögmætum vöxtum.
Þegar það bregst verður Gylfi áhyggjufullur.
Ég velti því fyrir mér hvað Gylfi er að hugsa.
Er betra á láta fáum blæða alvarlega en að dreifa byrðinni.
Nú þegar hefur fjöldi fyrirtækja verðið keyrð í gjaldþrot og fjölskyldur bornar út af heimilum sínum vegna myntkörfulána.
Menn hafa tekið líf sitt í kjölfarið.
Gríðarleg mannréttindabrot hafa verið framin vegna þessara gengistryggðu lána.
Það er deginum ljósara að bankarnir vissu að gengistryggðu lánin voru ólögleg
Lagaákvæðið er mjög skýrt og bankarnir höfðu hundruð lögfræðinga á sínum snærum
Og hvað....
Gylfi hefur áhyggjur af því hvernig bönkunum líður
Er Gylfi ráðherra bankanna eða ráðherra fólksins
![]() |
Almenningur fengi reikninginn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2010-06-23
Vont að ekki er hægt að stela af almenningi
Már Guðmundsson virðist bera hlýjar kenndir til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og kenninga hans.
Ríkisstjórnin hefur undirritað viljayfirlýsingu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Hún skuldbindur sig til þess að fara að ráðum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í öllum málefnum sem hafa áhrif á gengi krónunnar, fjárlagahallann og upprisu bankanna.
Þetta er afsal á fullveldi þjóðarinnar sem hefur fengið litla athygli í fjölmiðlum. Þeir Már Guðmundsson og Gylfi Magnússon fylgja Alþjóðagjaldeyrissjóðum að málum. Það sem Alþjóðagjaldeyðisjóðurinn hefur ekki áhuga á er:
Réttlæti
Hagur almennings
Hagur íslenskra fyrirtækja
Vöxtur atvinnulífs
Að landið sé lífvænlegur staður fyrir Íslendinga
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er verndari alþjóðafjármálafyrirtækja og stóriðju. Jóhanna Sigurðardóttir hefur gjarnan kallað þetta alþjóðasamfélagið og telur að traust þeirra á Íslendingum sé verðmætt. Alþjóðafjármálakerfið og stóriðja ber traust til þeirra sem það getur grætt á.
Það er óhugnanlegt að horfa á hvernig mönnum hefur verið raðað í valdastöður af alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Óhugnanlegt hvernig þessir einstaklingar ganga erinda hans í viðleitni til þess að stela af almenningi.
![]() |
Hefðu lækkað vexti meira |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)